LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir Lómatjörn 3, 260 Reykjanesbæ sem er fallegt 4-5 herbergja forsteypt einbýlishús á einni hæð sem byggt var árið 2005 og er staðsett á góðum og fjölskylduvænum stað í Innri Njarðvík. Eignin er með stórum skjólgóðum sólpalli með heitum potti og innbyggðum bílskúr.
Samkvæmt FMR er heildarfermetrar eignarinnar 163,9 m2 sem skiptist í 134,5 m2 íbúðarrými og 29,4 m2 bílskúr. Gólfhiti er í öllu húsinu. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, 3 svefnherbergi (auðvelt að breyta í 4 svefnherbergi) þvottahús og bílskúr. Mikil lofthæð er í alrými, hæðst 3,15m. Innkeyrsla er hellulögð með hitalögn. Stór garður á baklóð.Nánari lýsingForstofan er rúmgóð með góðum fataskápum, og flísalögðu gólfi. Frá forstofu er komið inn í miðrými húss þaðan sem gengið er inn í aðrar vistarverur, flísar á gólfi.Eldhús með viðar innrétting, harðplast borðplötur, gert er ráð fyrir uppþvottavél og tvöföldum ísskáp, ofn og örbylgjuofn innbyggðir í vinnuhæð, mikið skápapláss ásamt borðeyju, flísalagt gólf.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með stórum gluggum. Útgengi á stóran sólpall með heitum potti, flísar á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með mjög góðum fataskápum og parketi á gólfi, útgengi út á verönd.
Svefnherbergi I er rúmgott með parket á gólfi.
Svefnherbergi II: mjög rúmgott með fataskáp, auðvelt að breyta í tvö herbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi með upphengdu salerni, hornbaðkar með nuddi, stórri sturtu, góðum skápum og handklæðaofni, flísar á gólfum og veggjum, opnanlegur gluggi.
Þvottahús með rúmgóðri innréttingu, þvottavél og þurrkari í vinnuhæð. vaskur, flísar á gólfi.
Bílskúrinn er innbyggður með heitu og köldu vatni, flísalagt gólf. Bílahleðslustöð.
Geymsluskúr á lóð er um 10 m2.Frábærlega vel staðsett eign í rótgrónu hverfi þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla og alla helstu þjónustu og verslanir. Allar upplýisingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is