Sérinngangur er af svölum og íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu. Íbúðin er alls 105,3 fm skv skráningu HMS og er 9,8 fm sér geymsla inn í þeirri fermetratölu. Íbúðin skiptist í forstofu, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu með útgengi út á 7,2 fm suðvestur svalir og tvö svefnherbergi. Húsið er b... Sýna meira
Sérinngangur er af svölum og íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu. Íbúðin er alls 105,3 fm skv skráningu HMS og er 9,8 fm sér geymsla inn í þeirri fermetratölu. Íbúðin skiptist í forstofu, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu með útgengi út á 7,2 fm suðvestur svalir og tvö svefnherbergi. Húsið er byggt árið 2002, klætt að utan og er því viðhaldslítið. Snyrtilegur sameiginlegur garður með góðum leikvelli bakatil. Um að ræða góða eign á vinsælum stað í salahverfi í Kópavogi. Stutt í alla almenna þjónustu og skóla ásamt sundlaug í næsta nágrenni.Nánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi, góðum skáp.Eldhúsið er opið inn í stofu, eldhúsinnrétting úr machonyvið, flísar á milli skápa og plastparket á gólfi. Ísskáður og uppþvottavél geta fylgt íbúð, nýr bakaraofn.Stofan er opin og björt, plastparket á gólfi, með útgengi út á 7,2 fm suðvestur svalir með fallegu útsýni.Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtu. Ljós innrétting. Tvö herbergi sem eru með góðum fataskápum. Plastparket á gólfi.Þvottahúsið er með góðum skápum og hillum. Flísar á gólfi. FASTEIGNAMAT ÁRSINS 2024 ER KR. 75.100.000,-Í sameign stór sérgeymsla og önnur minni sameiginleg geymsla. Stór sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á 1. hæð. Sérstæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Stigahúsið er upphitað og með lyftu.Hér er um að ræða vandaða eign á góðum stað í salahverfi í Kópavogi. Stutt í alla almenna þjónustu og sundlaug í næsta nágrenni.Allar nánari upplýsingar veitir Kristján Baldursson hdl. og lgfs. í síma 867-3040 eða á netfanginu Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.