Miklaborg kynnir: Vel skipulögð tveggja herbergja 56,3 fm íbúð á frábærum stað í virðulegu steinhúsi á þessum eftirsótta stað efst í Þingholtunum. Eignin skiptist í: forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi og svefnherbergi og geymslu innan íbúðar.
Allar nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is og Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali, í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi, fatahengi.
Gangur tengir öll rými íbúðar saman, flísar á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi.
Eldhús er opið við stofu með hvítri nýlegri innréttingu. Tengi fyrir þvottavél. Borðkrókur. flísar á gólfi.
Baðherbergi flísalagt gólf og hluti veggja. Sturta og salerni.
Svefnherbergi er rúmgott með parketi á gólfi.
Geymsla er rúmgóð innan íbúðar. Í dag er hún nýtt sem svefnherbergi.
Þvottahús er í sameign í kjallara.
Nýlegar endurbætur að sögn seljanda:
2026 Skipt vatnslagnir í sameign
2023 Sprungu og múrviðgerðir utanhúss
2022 Þak endurnýjað og yfirfarið
2015 Skipt um raflagnir og rafmagnstöflu
2015 Skipt um ofnalagnir í íbúð
Íbúð á einstökum stað á Skólavörðuholtinu þar sem stutt er í miðbæinn, verslun, veitingastaði og menningarsvæði. Stutt í skóla, leikskóla, leiksvæði og almenningsgarða.






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu

















| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|---|---|---|---|
| 2 | 53,80 m² | 49.900.000 kr. 6. júlí 2026 | 31.250.000 kr. 25. september 2018 |
| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 06.07.2026 Nánar | 53,8 m² | 927.509 kr. | 49.900.000 kr. |
| 02.07.2026 Nánar | 53,8 m² | 964.684 kr. | 51.900.000 kr. |
| Dags. | Kaupverð |
|---|---|
| 25. september 2018 | 31.250.000 kr. |
| 13. september 2007 | 13.900.000 kr. |
0201 | - | - | - | - - |























0101 | - | - | - | 31.200.000 kr. 25. febrúar 2008 |
0301 | - | - | - | 14.163.000 kr. 20. júlí 2009 |