Stórborg kynnir í einkasölu Lokastíg 3, 101 Reykjavík. Miðbæjarperla á frábærum stað og sem fellur undir heimild til að fá gistileyfi II.
Nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 200-5996 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Lokastígur 3 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-5996, birt stærð 274.4 fm.
Um ræðir heildareignin sem samanstendur af þremur samþykktum íbúðum auk geymslna.
Íbúð á jarðhæð er 3ja herbergja 90.1 fm með sérinngangi auk mun fylgja ný 3.1 fm geymsla. Samtals ca. 93.2 fm. Verönd í vestur út af eldhúsi.
Íbúð á 1.hæð er 2ja herbergja 61.5 fm með sérinngangi auk þess mun fylgja ný 3.1 fm geymsla. Samtals 64.6 fm. Stórar svalir eru út af eldhúsi 13.4 fm.
Íbúð á 2.hæð og í risi er 4-5 herbergja 113.6 fm auk mun fylgja ný 3.0 fm geymsla. Tvö baðherbergi eru í þessari íbúð. Samtals 116.6 fm. Svalir eru út af 2.hæð sem eru 3.2 fm og út af risi sem eru 2.6 fm.
Steve Christer hjá Studio Granda er hönnuður húss og lóðar. Húsið er fullbúið að utan, múrað, málað bæði steinn og tré. Garður er hellulagður og með hitalögn. Allt endurnýjað, ytra byrði, gluggar, gler og þak. Allar lagnir endurnýjaðar, pípulögn og raflögn. Ris var hækkað og gerð glæsileg 4-5 herbergja íbúð á 2.hæð og í risi með tvennum svölum. Rúmgóð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með útgangi út verönd. Rúmgóð 2ja herbergja íbúð á 1.hæð með stórum svölum. Sérinngangur í allar íbúðir. Gólfhiti og gluggar eru á öllum baðherbergjum. Húsið er að mestu tilbúið undir innréttingar að innan.
Gæti hentað undir útleigu ( gistileyfi II) eða íbúðar/fjölskylduhús með þremur íbúðum. Eignin er upphaflega byggð árið 1926 en hefur allt verið endurbyggt frá árinu 2018.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Hrafn , í síma 8952049 , tölvupóstur stefan@storborg.is.