Eignamiðlun kynnir:Fallegt 194,4 fm endaraðhús á tveimur hæðum þar af innbyggður 33,2 fm bílskúr og geymsla. Fjögur svefnherbergi, fallegur garður með verönd bæði hellulögðum og timbur. Smellið hér til að fá söluyfirlit sent straxSamkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 194,4 fm og skiptist í neðri...
Sýna meira
Eignamiðlun kynnir:Fallegt 194,4 fm endaraðhús á tveimur hæðum þar af innbyggður 33,2 fm bílskúr og geymsla. Fjögur svefnherbergi, fallegur garður með verönd bæði hellulögðum og timbur. Smellið hér til að fá söluyfirlit sent straxSamkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 194,4 fm og skiptist í neðri hæð 78,4 fm og efri hæð 82,8 fm. Innbyggður bílskúr og geymsla 33,2 fmNánari lýsing:Komið er inn um sérinngang inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp. Flísalögð gestasnyrting með glugga. Flísalagt eldhús með fallegri eikar innréttingu, steinn á borðum, borðkrókur við glugga. Þvottahús er innaf eldhúsi, gluggi og göngudyr út á lóð. Stofur sem skiptast í borðstofu og setustofu með dyrum út á verönd, innfelld lýsing að hluta í stofum. Bjart stigahol með timburstiga er upp á efri hæð. Á efri hæð er sjónvarps- eða fjölskyldurými þaðan sem hægt er að ganga út á svalir sem snúa til norðvesturs. Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi, parket á gólfi. Þrjú barnaherbergi eru einnig á efri hæð, öll rúmgóð. Gólfefni herbergja er parket og dúkur. Flísalagt baðherbergi með sturtuklefa, baðinnréttingu og glugga. Bílskúr er með köldu vatni, gluggum og göngudyrum útí garð. Innkeyrsla er hellulögð með hitalögn. Nánari uppl.Brynjar Þór Sumarliðason viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali í síma 896 1168 - Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Heimasíða EignamiðlunarEignamiðlun á Facebook