**Opið hús mánudaginn 11. maí milli kl. 18:00 og 18:30**
Virkilega notalegt 270,3m² einbýli á þremur hæðum. Fimm svefnherbergi og rúmgóðar stofur. Mögulegt að hafa aukaíbúð með sérinngang í kjallara. Gott hús á vinsælum stað í Smáíbúðahverfinu. Sólríkur garður til suðurs með sólpalli í hluta garðs. Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 270,3m², flatarmál íbúðarrýmis er 230,4m² og flatarmál bílskúrs er 39,9m².
Húsið skiptist í þrjár stofur, eldhús, snyrtingu, fimm herbergi, baðherbergi, þvottahús og sérstæðan bílskúr.
Nánari lýsing:MiðhæðForstofa með flísum á gólfi.
Stofa 1 er rúmgóð með fallegu parketi lagt í síldarbeinsmunstur.
Stofa 2 er einnig rúmgóð og björt með stórum gluggum til suðurs, fallegt parket lagt í síldarbeinsmunstur.
Eldhús er rúmgott, hvít innrétting, flísar á milli efri og neðri skápa, tengi fyrir uppþvottavél, gluggar á tvo vegu. Flísar á gólfi.
Snyrting innaf forstofugangi, flísar á gólfi og gluggi.
Efri hæð. Gengið upp teppalagðan stiga.
Hjónaherbergi er rúmgott og með innbyggðum fataskápum, dúkur á gólfi. Svalir til austurs út frá herbergi.
Tvö minni herbergi með parketi á gólfum.
Baðherbergi með baðkari, flísar á gólfi og upp á veggi. Gluggi er á baðherberginu.
Kjallari. Gengið niður teppalagaðan stiga. Sér inngangur er einnig í kjallarann.
Tvö svefnherbergi með innbyggðum fataskápum, dúkur á gólfi.
Stofurými með dúk á gólfi.
Eldhús lítill eldhúskrókur með efri og neðri skápum, helluborði og vask.
Snyrting undir stiga.
Þvottahús með flísum á gólfi og sturtuklefa. Innaf þvottahúsi er geymsa og inntaksrými.
Bílskúr er skráður 39,9m² og er hann við hliðina á húsinu. Hiti er í innkeyrslu og framan við húsið.
Húsinu hefur verið haldið við í gegnum tíðina og má þar nefna td nýja rafmagnstöflu og raflagnir, hluta af gleri og gluggum hefur verið endurnýjað, nýtt þakjárn á viðbygginguna og bílskúr, árið 2017 var húsið múrviðgert og málað að hluta.
Nánari uppl.Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@eignamidlun.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.