Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali, ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu nýlegt heilsárshús, Litla kot sem stendur á 2,4 HA eignalóð í Byggðarhornslandi í Sveitarfélaginu Árborg. Keyrt er að landinu frá Votmúlavegi. Snyrtilegt og mjög smekklega innréttað 40,5 fm hús byggt árið 2021 ásamt sólskála sem er byggður út frá langhlið hússins. Staðsetning er ca 6 km sunnan við Selfoss. Áhugaverð eign sem býður upp á marga spennandi möguleika bæði í ferðaþjónustu sem og búsetu. Heilsárshús, skráð einbýli er byggt úr timbri, utanhúsklæðning er málað timbur og járn er á þaki. Á gólfum eru marglita náttúruflísar og húsið er kynnt með svæðaskiptum gólfhita. Upptekið loft að stærstum hluta en yfir svefnálmu er niðurtekið loft.
Eitt svefnherbergi og inn af því er rúmgott baðherbergi með "walk inn" sturtu með glervegg, innrétting og upphengt wc. Eldhús stofa- og borðstofa í opnu og björtu rými og útgengt í sólskála. Stór sólpallur og sólskáli er við húsið.
Landið sem húsið stendur á er 2,4 ha mólendi sem er m.a. mjög gott beitarland. Deiliskipulag fyrir þessa lóð gerir ráð fyrir því að hægt sé að byggja eitt einbýlishús allt að 400fm og að auki útihús fyrir dýr og fóður ásamt vélageymslu allt að 500 fm. Samanlagt byggingarmagn getur því verið allt að 900 fm á þessari lóð. Samkvæmt Aðalskipulagi Árborgar 2000-2036 er Búgarðabyggð skilgreind þannig: Um er að ræða heilsársbyggð þar sem þjónusta verður veitt af sveitarfélaginu Árborg. Þar má reisa vegleg íbúðarhús og hesthús eða húsnæði fyrir ýmis konar húsdýrahald eða aðra landbúnaðartengda starfsemi.
Flott hús á friðsælum stað í góðri sveit, staðsett aðeins 6km frá Selfossi.
Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali s. 891-8891 eða hafsteinn@husfasteign.is
Hringið og bókið skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, fyrstu kaupendur 0,4%, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.