Jón Smári Einarsson lgf. og Fasteignaland kynna: Stekkar, 311 Borgarbyggð – fallegt og vel staðsett 77,2 fm sumarhús í landi Litlu-Grafar.Um er að ræða snyrtilegt og vel skipulagt sumarhús á gróinni og fallegri leigulóð, sem nefnd er Hádegishóll 3 í opinberum gögnum. Eignin er staðsett á rólegum og eftirsóttum stað, stutt norður af Borgarnesi, þar sem njóta má kyrrðar, náttúru og góðrar aðkomu.Nánari lýsingKomið er inn í
forstofu með furuplönkum á gólfi og fatahengi. Inn af forstofu er einnig búr/geymsla sem nýtist vel.
Stofa og eldhús eru í björtu og opnu rými með furuplönkum á gólfi.
Eldhúsið er hlýlegt og þar er góður borðkrókur. Frá stofu er gengið inn í notalega
sólstofu, einnig með furuplönkum á gólfi, og þaðan er útgengi á rúmgóðan, um
110 fm sólpall sem býður upp á gott útisvæði til afslöppunar og samveru.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með furuplönkum á gólfi, þar af eitt rúmgott hjónaherbergi. Herbergisgangur er einnig með furuplönkum á gólfi.
Baðherbergið er rúmgott og snyrtilegt, með furuplönkum á gólfi, sturtuklefa, upphengdu salerni og handlaug á borði.
5 fm geymsla (inngengi frá palli) og um
6 fm geymsluskúr er á palli (ekki skráður). Einnig lítið gróðurskýli í lélegu ástandi á lóðinni.
Húsið er rafmagnskynnt og er hitakútur fyrir neysluvatn. Kalt vatn kemur frá Veitum - álagning fyrir árið 2026 er kr. 45.501).
Lóð og aðkomaLóðin er einstaklega falleg, gróin og skjólgóð, með miklum gróðri og háum trjám. Aðkoma að eigninni er góð og bílastæði eru innan hliðs, með rými fyrir nokkra bíla.
Lóðarleiga á ári er um kr. 150.000. Ekkert sumarhúsfélag er starfandi á svæðinu.
Nánari upplýsingarHúsið var upphaflega byggt sem 30 fm sumarhús árið 1986, en var endurbyggt og stækkað í 77,2 fm árið 2012. Rotþró var endurnýjuð um 2009. Rafmangtafla og raflagnir endurnýjaðar 2011. Kalt vatn tekið inn og nýjar lagnir 2007.
Möguleiki er á að hluti búslóðar fylgi með í kaupum á eigninni.
Eignin Stekkar er skráð hjá HMS sem eign 211-0446, birt stærð 77,2 fm.
Staðsetning og nærumhverfi:Stutt er á þekkta staði á Vesturlandi svo sem Arnarstapa, Kirkjufell, Snæfellsjökul, Hraunfossa, Barnafossa, Deildartunguhver, Akranes og Stykkishólm.
Stutt í golf á Hamramsvöll eða Glanna, gönguleiðir, útivist og í alla verslun og þjónustu í Borgarnesi en þangað eru aðeins 16 km. Fjarlægð frá Reykjavík er ca 70 km
Hér er um að ræða gott og vel staðsett sumarhús á vinsælum stað, þar sem falleg náttúra, skjólgóð lóð og notalegt hús fara vel saman.
Sjón er sögu ríkari – bókið skoðun.Nánari upplýsingar veitir:
Jón Smári EinarssonLöggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.jonsmari@fasteignaland.is
s. 860-6400Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 .
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.