Fasteignasalan Hvammur
Lindasíða 45 - Falleg og björt 3ja herbergja íbúð með sér inngangi á jarðhæð ásamt bílskúr - Stærð 111,7 m²
Góð staðsetning, stutt í skóla og leikskóla sem og Norðurtorg. Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:Forstofa, eldhús, stofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsla og bílskúr.
Forstofa er með góðum fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús er með ljósri filmaðri innréttingu með stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél. Gengið er út á verönd úr eldhúsi. Harðparket er á gólfi.
Stofa er í opnu rými með eldhúsi, björt og falleg stofa með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi eru tvö, bæði með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er með innréttingu undir vask, wc og baðkari með sturtutækjum og glervæng. Opnanlegur gluggi. Flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús er með innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi
Geymsla er innaf þvottahúsi og er í dag notað sem vinnurými. Flísar á gólfi. Einnig er lítil séreignargeymsla úti.
Bílskúr, 22,7 m² er afar snyrtilegur með rafdrifinni hurð og lökkuðu gólfi.
Annað:- Geymsluskúr á lóð fylgir.
- Gólfhiti er í íbúðinni.
- Eignin getur verið laus fljótlega.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.