Falleg og mikið endurnýjuð 118 fm efri sérhæð með fallegu útsýni vestanmegin á Seltjarnarnesi.
NÁNARI LÝSING: Komið inn um sérinngang og gengið upp bogadreginn steinsteyptan stiga upp á stigapall. Þvottahús er á stigapalli. Þaðan er gengið inn í hol sem leiðir þig í allar vistaverur íbúðarinnar. Eldhús er með fallegri nýlegri innréttingu með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Eldunareyja með nýlegum tækjum skilur af eldhús og borðstofu. Borðplötur eru heilflísalagðar á fallegan og vandaðan hátt ásamt sólbekkjum í stofu og eldhúsi. Stofurnar eru tvær og skiptast í borðstofu og stofu. Rúmgott hjónaherbergi með skápum. Tvö mjög rúmgóð barnaherbergi en er annað þeirra notað í dag sem sjónvarpshol. Baðherbergið er nýlega endurnýjað og er flísalagt í hólf og gólf, falleg innrétting, upphengt salerni og gluggi.
Húsið hefur fengið mikið viðhald á síðustu árum. Búið er að steypuviðgerða það og einnig hefur verið skipt um flesta glugga í íbúðinni.
Eigninni fylgir bílskúrsréttur samkvæmt teikningum en þarf að virkja aftur hjá Byggingafulltrúa Seltjarnarness.
Falleg eign með frábæru útsýni til suðurs og vesturs.
Allar nánari upplýsingar gefur Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu


































| Íbúð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|
| Dags. | Kaupverð |
|---|---|
| 26. nóvember 2018 | 48.500.000 kr. |
| 29. desember 2016 | 44.700.000 kr. |
0301 ![]() | 115.900.000 kr. 22. mars 2026 | 48.500.000 kr. 26. nóvember 2018 |
0101 ![]() | 74.900.000 kr. 14. desember 2021 | 73.000.000 kr. 31. mars 2022 |
0201 | - | 52.000.000 kr. 13. júní 2016 |