Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu: Snyrtilegt, nýlegt einbýlishús 140,2 fm ásamt sambyggðum bílskúr, 50,6 fm samtals 190,8 fm. Húsið er byggt árið 2018 úr timbri, klætt með báru og timbri og járn er á þaki. Húsið stendur innarlega í botnlanga í rólegu hverfi í Fosslandinu á Selfossi. Húsið stendur á 840 fm eignalóð. Stór sólpallur ca 120 fm með skjólgirðingu og heitum potti ásamt fínum ca 15 fm geymsluskúr.Nánari lýsing:
Forstofa með fatahengi og inn af því er gestasalerni. Fjögur fín svefnherbergi, þrjú þeirra með fataskápum. Bjart og stílhreint eldhús í opnu rými við rúmgóða stofu og borðstofu þar sem útgengt er út í stóran sólpall með skjólgirðingu og heitum potti. Flísalagt baðherbergi með upphengdu wc, innréttingu, handklæðaofni, sturtu með glervegg og gönguhurð út á sólpall. Innangengt er í rúmgóðan, bílskúr með stórri innkeyrsluhurð og uppteknu lofti. Þvottahús með flísum á gólfi og góðri innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnsluhæð.
Á gólfum er snyrtilegt vínilparket, innréttingar eru frá IKEA og húsið er kynnt með svæðskiptum gólfhitakerfi. Í þeim hluta hússins sem telur stofu- og eldhús er upptekið loft með ljósum loftaþyljum og innfeldri ledlýsingu. Í öðrum rýmum er niðurtekið loft sem einnig er með hvítum loftaþyljum og lýsingu.
Garðurinn er þökulagður og möl í bílaplani.
Í alla staði virkilega fínt, nýlegt einbýli á eignalóð á fínum stað á Selfossi.
Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali s. 891-8891 eða hafsteinn@husfasteign.is
Hringið og bókið skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, fyrstu kaupendur 0,4%, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.