Betri Stofan Fasteignasala kynna: Mikið endurnýjað 201 fm. raðhús vð Laxakvísl 18, 110 Reykjavík/Ártúnsholti. Bjart og skemmtilegt 6 herbergja raðhús á tveimur hæðum sem hefur verið mikið endurnýjað á vandaðan og smekklegan hátt.
Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, jason@betristofan.is / sími 775 1515 - Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@betristofan.is sími 899-5533Nánari lýsing:1.hæð.Forstofa: parket á gólfi og góðir skápar. Úr forstofu er gengið inn í bílskúr sem skipt hefur verið upp í mjög góða
fatageymslu með miklu skápaplássi og parketi á gólfi og hins vegar góða
geymslu með steinteppi á gólfi.
Eldhús: Falleg ljós/viðar innrétting sem flæðir á fallegan hátt inn í borðstofu. Ofn og Combyofn í vinnuhæð, helluborð í eyju, snýr út að borðstofu, setpláss í eyju, einstaklega gott skápapláss í eldhúsi.
Stofa/borðstofa: í opnu rúmgóðu rými tengt eldhúsi, úr stofu er gengið út í suðurgarð með góðum pöllum og skjólveggjum.
Gestasnyrting: flísar á gólfi, innrétting undir vaski og vegghengt salerni.
Geymsla: er undir stiga, parket á gófi.
Hol: opið inn í alrými, góðir fataskápar. Úr holi er gengið upp á aðra hæð hússins.
Öll gólf hafa verið endurnýjuð og er gólfhiti í gólfum neðri hæðar. 2. hæð:Fjölskyldurými/Sjónvarpsstofa: Bjart og fallegt þar sem nýjir þakgluggar hleypa birtu inn í rýmið.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og góðu skápaplássi. parket á gólfi. Úr hjónaherbergi er útgengt út á
suðursvalir.Herbergi II: Rúmgott herbergi með góðum skápum parket á gólfi.
Herbergi III: Gott herbergi með skápum og parketi á gólfi.
Herbergi IV: Gott herbergi með skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Nýlega uppgert, flísar á gófi og veggjum að hluta, baðkar, sturta og góð innrétting. Gluggi á baði.
Þvottahús: Vel innréttað með glugga.
Garður er í suður, stór og góður pallur ásamt grasflöt og gróðri. Tvær útigeymslur eru á lóð.
Um er að ræða einstaka eign í vinsælu, fjölsylduvænu hverfi. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð og má þar nefna:
2024: Þak endurnýjað, þannig að farið var í nýja borðaklæðningu, einangrun, rakavarnarlagi ásamt loftaklæðningu. Nýjir þakgluggar. Steinteppi sett á svalir út af svefnherbergi.
2022: Bílahleðslustöð. Nýjar hellur og ruslaskýli fyrir framan hús ásamt nýrri snjóbræðslu.
2017: Skipt um öll gólfefni, hiti settur í gólf neðri hæðar, þá var eldhús endurnýjað auk baðherbergja og allra fataskápa. Skipt um innihurðir líka. Sama lína í efnisvali hefur haldið sér í innréttingum og fataskápum í öllu húsinu sem gefur eigninni sérlega fallegt heildarútlit. Einnig hefur verið skipt um neysluvatnslagnir sem og raflagnir að hluta.
Nánari upplýsingar veita:
Jason Kristinn Ólafsson, í síma 775 1515, tölvupóstur jason@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir, í síma 8995533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.