*** Eignin er seld og í fjármögnunarferli *** OPIÐ HÚS SEM VERA ÁTTI 1.NÓV FELLUR ÞVÍ NIÐURGimli fasteignasala kynnir: Virkilega fallega og bjarta mikið endurnýjaða, fjögurra herbergja endabúð á 3ju (efstu) hæð ásamt innbyggðum bílskúr. Hús og sameign hafa fengið gott viðhald.Eignin skiptist í: fors... Sýna meira
*** Eignin er seld og í fjármögnunarferli *** OPIÐ HÚS SEM VERA ÁTTI 1.NÓV FELLUR ÞVÍ NIÐURGimli fasteignasala kynnir: Virkilega fallega og bjarta mikið endurnýjaða, fjögurra herbergja endabúð á 3ju (efstu) hæð ásamt innbyggðum bílskúr. Hús og sameign hafa fengið gott viðhald.Eignin skiptist í: forstofu, hol, eldhús með borðkrók, stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Geymsla er í sameign á jarðhæð.Eignin er mikið endurnýjuð. Hér þarf ekkert að gera, bara flytja inn. Íbúð 101,8 fm, geymsla 7,1 fm og bílskúr 21,7 fm, alls 130,6 fm.Nánari upplýsingar veitir Halla Unnur Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 659-4044 og/eða Elín Rósa Guðlaugsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 773-7126, milli kl. 9:00 og 18:00 alla virka daga, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til og/eða NÁNARI LÝSING:Forstofa/gangur: með skáp. Úr forstofu er komið í hol sem tengir allar vistarverur íbúðarinnar.Eldhús: nýl. innrétting og tæki, gluggi og borðkrókur. Ísskápur og uppþvottavél fylgja.Stofa/borðstofa: björt, gluggar á tvo vegu, útg. á rúmgóðar flísalagðar suður-svalir.Hjónaherbergi: rúmgott, gluggar á tvo vegu, góðir skápar.Svefnherbergi #2: rúmgott, tvöfaldur skápur.Svefnherbergi #3: rúmgott, án skápa.Baðherbergi: flísalagt gólf og veggir, baðkar, sturtuklefi, vaskur í innréttingu og handklæðaskápur, gluggi á baði.Þvottahús: flísar á gólfi, nýr skolvaskur og tæki, nýmálað.Á gólfum, öðrum en að framan greinir, er fallegt harðparket með eikarplankaáferð.Nýleg sérhönnuð lýsing er í forstofu, gangi, eldhúsi og stofu. Öll ljós fylgja.Bílskúr: Innbyggður, fjarstýrður hurðaopnari, vaskur með heitu og köldu vatni, flísar á gólfi og innrétting og hillur á vegg, snjóbræðsla.Úr bílskúr er innangengt beint inn í stigagang. Bílskúrshurð er nýmáluð.Geymsla: Rúmgóð sérgeymsla er á jarðhæð. Veggfastar hillur, rafmagnstengill fyrir t.d. frystikistu/-skáp.Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er á jarðhæð.Nýlegar framkvæmdir:Sameign: Nýleg teppi á stigagangi og stigahús er nýmálað að innan. Gluggar að utan og þakkantur málað 2020, skipt um gluggalista.Íbúð: Allar innihurðir eru nýjar. Allir gluggar málaðir af fagmanni, ný stormjárn, nýtt gler að hluta. Nýl. rofar og tenglar. Allir ofnar yfirfarnir og málaðir af fagmanni. Nýl. gólfefni utan blautrýma. Nýl. eldhússinnrétting og tæki. Nýl. skápur og innrétting á baðherbergi, vaskur og blöndunartæki. Allar framkvæmdir að innan fóru fram 2020-2021.Niðurlag: Björt og vel skipulögð fjölskylduíbúð miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Stutt í alla þjónustu, verslanir, tómstundir og stofnbrautir.Nánari upplýsingar veitir Halla Unnur Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 659-4044 og/eða Elín Rósa Guðlaugsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 773-7126, milli kl. 9:00 og 18:00 alla virka daga, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til og/eða Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnar því fljótlega 40 ára starfsafmæli. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.