Fasteignasalan TORG kynnir: Einstaklega fallega og vel hönnuð, 3ja herb. þakíbúð með fallegu útsýni á vinsælum stað í Fossvogi Sér inngangur, 2 sérmerkt bílastæði. Íbúðin er skráð hjá FMR 119,9 fm þar af er geymsla 9,6fm, einnig fylgir íbúðinni hjóla og vagna geymsla í sameign í kjallara. Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir lgf.í síma: 690 4966 eða í matthildur@fstorg.isÍbúðin er einstaklega fallega hönnuð af Rut Káradóttur arkitekt. Allar innréttingar eru spónlagðar með svörtum Aski og eru sérsmíði frá HEGGUR ehf. Einstaklega fallegur marmari frá FIGARO er á borðplötum og upp á veggi í eldhúsi. Blöndunartæki bæði í eldhúsi og á baði eru af vandaðri gerð frá GROHE í ''gunmetal'' lit. Innihurðir eru í yfirstærð. Gólf utan hjónaherbergis eru lögð 120X120 cm flísum frá EBSON en teppi eru á stiga og hjónaherbergi. Íbúðin státar af tvennum svölum, aðrar til suðurs ríflega 20fm og hinar til vesturs, 5 fm. Lýsing er hönnuð af LUMEX. Góð hljóðvist er í íbúðinni. Gólfhiti nema í anddyri og svefnherbergjum.
Frekari lýsing:Gengið er inn í flísalagt andyri, þaðan er gengið upp fallegan teppalagðan stiga með stál handriði og lýsingu, loft og veggur í stigahúsi er klætt hljóðvistarplötum að hluta.
þegar komið er upp tekur á móti glerveggur með stál römmum og reyklitu gleri sem skilur að hjónaherbergið og ganginn sem leiðir í önnur rými íbúðarinnar.
Eldhús, borðstofa og stofa eru einu björtu rými. Gluggar eru gólfsíðir með rennihurð út á yfir 20 fm svalasvæði.
Eldhúsinnrétting er mjög vegleg á tvo veggi hún nær upp í loft, fallegur tækja/ bar skápur með hillum og skúffum og klæddur marmara að hluta að innan, lýsing er inni í tækjaskáp.
Eyja með góðu geymsluplássi og glæsilegum marmara skilur að borðstofu og eldhús. Innfelld lýsing er undir efri skápum og hillu í eldhúsi. Bakarofn og combi ofn frá SIEMENS eru í vinnuhæð.
Gas helluborð með 5 brennurum. Innbyggður 176cm kæliskápur frá LIEBHERR með 2 frysti skúffum og klakavél. Innbyggð uppþvottavél í XL frá SIEMENS.
Vaskur og blöndunartæki í ''gunmetal'' lit. Stór sérsmíðuð hilla með lýsingu tengir borðstofu við eldhús.
Hljóðvist er mjög góð þar sem hljóðvistarplötur eru í hluta loftaklæðningar, Lýsing er innfeld og Find Me kastarar ásamt skugga lýsingu ofan við glugga og víðar.
Hjónaherbergi: Fataskápar upp í loft á einn vegg. Lýsing er fallega hönnuð með innfelldum ljósum sem lýsa að fataskápum og einnig Find Me kösturum frá FLOS. Skuggalýsing er ofan við glervegg og svalahurð. Gengið er út á vestur svalir frá hjónaherbergi. Gólf er teppalagt.
Baðherbergi: Flísalagt á tvo veggi. Innrétting með skúffum og marmara handlaug og borðplata í einu stykki. Innbyggð blóndunartæki bæði í sturtu og fyrir handlaug. Ofanvið handlaug er stór spegill með ASTRO veggljósum frá LUMEX. Sérsmíðuð handklæða slá úr stáli í ''gunmetal''. Innbyggð loftljós og skugga lýsing ofan við glugga.
Reyklitað öryggisgler skilur að sturtuaðstöðu.
Svefnherbergi2: Innfeld lýsing og Find Me kastarar frá FLOS. Gólf er flísalagt.
Þvottahús: Gott þvottahús með klæðaskáp upp í loft ásamt skáp sem getur geymt ryksugu og aðrar hreinlætisvörur. Gott vinnuborði með vaski og hilla ofanvið, tengi fyrir þvottavél og þurkara. Opnanlegur gluggi.
Suðursvalir: Flísalagðar á flísastóla, heitur pottur, 2 rafdrifnar markisur og ca3 fm upphituð geymsla
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Matthildur Sunna Þorláksdóttir lgf.í síma: 690 4966 eða í matthildur@fstorg.is
*Vakin er athygli á því að seljandi er starfsmaður á fasteignasölunni TORG