RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna, Laugateig 17 , íbúð 0001, fnr. 201-9173 Íbúðin er skráð hjá þjóðskrá 91,6 fm. Skráð byggingarár hússins er 1948. Húsið er tvær hæðir og kjallari og er íbúðin í kjallara hússins. Sjá má skipulag íbúðar á teikningu sem er vistuð þar sem ljósmyndir eru af eigninni. Íbúðin hefur verið endurnýjuð mikið á síðustu árum og skipulagi breytt.
FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.Nánari lýsing:Aðkoma: Hellulagt niður að tröppum sem liggja að inngangi í íbúðina.
Forstofa: Parket á gólfi. Geymsla er við hliðina á forstofu.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Gluggar á tvo vegu.
Eldhús: Parket á gólfi. Brún innréttting. Bakstursofn í vinnuhæð. Helluborð með viftu yfir.
Svefnherbergi: Eru tvö og er parket á gólfum þeirra beggja.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja við votrými. Baðkar með sturtutæki. Upphengt salerni. Innrétting með handlaug og efri skápum. Tengi fyrir þvottavél er í rýminu. Gluggi er á baðherberginu.
Geymsla: Geymsla er vinstra megin við inngang í íbúðina.
Laugateigur 17 er falleg kjallaraíbúð vel staðsett í Laugardalnum. Skv upplýsingum frá seljanda var húsið sjálft steinað að utan fyrir um 10 árum. Þá var skorsteinn fjarlægður, nýtt járn sett á þak og þakglugga komið fyrir, fyrir um 5 árum. Skólp og dren einnig endurnýjað í tengslum við breytingar á inngangi íbúðar. Sérafnotareitur er framan við inngang. Skipta þarf einhverjum gluggum út í íbúðinni. Allar nánari upplýsingar veitir:Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s:
861-7507 eða á
daddi@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.