***ÍBÚÐIN ER SELD - var 6 daga á söluskrá ***Mikill áhugi var fyrir íbúðinni og erum við því með fólk á skrá, sem enn leitar að sambærilegri eign.M.a. aðila sem vill minnka við sig og skipta á góðri sérhæð í hverfinu.Bókið frítt verðmat á ykkar fasteign í síma 774 7373 eða . - Kannski eru tækifærin... Sýna meira
***ÍBÚÐIN ER SELD - var 6 daga á söluskrá ***Mikill áhugi var fyrir íbúðinni og erum við því með fólk á skrá, sem enn leitar að sambærilegri eign.M.a. aðila sem vill minnka við sig og skipta á góðri sérhæð í hverfinu.Bókið frítt verðmat á ykkar fasteign í síma 774 7373 eða . - Kannski eru tækifærin skammt undan!Smart 3-4ra herbergja íbúð á tveimur hæðum á Laugarnesvegi. Góð staðsetning og bílastæði á baklóð.Heimili fasteignasala kynnir skemmtilega og vel staðsetta 3-4 herbergja 99,8 fm íbúð með tvennum svölum á Laugarnesvegi 62. Eignin er skráð 99,8 fm, hæðin er 74 og skemmtilegt opið rými í risi er 25,8 fm. Gólfflötur er töluvert meiri, þar sem hluti eignar í risi er undir súð. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, borðstofu/stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymsla og ris hæð. Suð-austur svalir úr stofu og norð-vestur svalir úr hjónaherbergi. Smart eign í litlu fjölbýli í eftirsóttu og grónu hverfi. Nánari lýsing: Anddyri með flísar á gólfi og góðum skápum. Þvottahús/geymsla með flísar á gólfi. Eldhús, borðstofa/stofa í björtu alrými og þaðan gengið út á svalir. Hvít eldhúsinnrétting með viðarborðplötu. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Stofa/borðstofa er rúmgóð með mikilli lofthæð og tengir skemmtilega við rishæðina.Hjónaherbergi er með góðum fataskápum og útgengi á norð-vestur svalir. Barnaherbergi er rúmgott ,með parketi á gólfi. Baðherbergi er snyrtilegt, flísalagt í hólf og gólf, hvít innrétting með viðarborðplötu, sturtuklefi og baðkar. Handklæðaofn og opnanlegur gluggi.Beyki stigi með kókos-teppi er upp í risið sem eitt stórt opið rými, hátt til lofts og stór þakgluggi ásamt austurglugga. Risið hefur verið nýtt sem sjónvarpsstofa og gefur íbúðinni skemmtilegt yfirbragð. Skemmtileg lýsing og frágangur. Rúmgott geymslurými sem nær yfir alla breidd íbúðarinnar er undir súð (óskráðir fermetrar). Nýlegt parket á öllum gólfum, nema forstofu og votrýmum, sem eru flísalögð. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á 1. hæð. Hellulögð innkeyrsla með snjóbræðslu og einkabílastæði fyrir fjölbýlið á baklóð.Eign á eftirsóttum stað miðsvæðis í Reykjavík þar sem njóta má fjölbreyttar þjónustu s.s. skóla, leikskóla, verslana og veitingastaða, auk nálægðarinnar við allt það sem Laugardalurinn hefur uppá að bjóða s.s. sundlaugina, Höllina, Grasagarðinn, Fjölskyldu-og húsdýragarðinn, Skautahöll Reykjavíkur og íþrótta- og tómstundasvæði Þróttar og Ármanns. Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali í síma 774 7373 eða Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi. Heimili fasteignasala – á traustum grunni í 20 ár.Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.