Jason Kristinn sími 7751515 og Betri Stofan fasteignasala kynna : Laufrimi 17. Sérlega fallegt og vel skipulagt 185,5 fm. raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr í Rimahverfi, Reykjavík. Eignin er í rólegu hverfi. Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, hol, eldhús, stofu / borðstofu, 4-5 svefnherbergi, baðherbergi og bílskúr með geymslulofti.
Forstofa er flísalögð með fatahengi.
Stofa / borðstofa er rúmgóð og björt með plastparket á gólfi. Góð lofthæð. Útgengt út á góðan sólpall með heitum potti.
Eldhús er með hvítri innréttingu. Plastparket á gólfi.
Svefnherbergi 1 er með plastparket á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með plastparket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með teppi á gólfi.
Baðherbergi var endurnýjað 2018. Flísalagt með gráum flísum, ljósri innréttingu með skápum og handlaug og "walk in" sturtu. Opnanlegur gluggi.
Þvottahús. Rúmgott með flísum á gólfi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Ris með opnu rými, einu svefnherbergi og lítil geymsla Auðvelt að útbúa 2-3 svefnherbergi.
Bílskúr er inngengur frá þvottahúsi og skráður 20,3 fm.
Fyrir framan húsið og bílskúr eru góð bílastæði.
Sólpallur frá 2019 með
heitum potti. Viðhald og endurbætur :
Húsið var málað 2024
Þak yfirfarið og málað 2024.
Nærumhverfi :
Fjölskylduvæn og vinsæl staðsetning þar sem er í göngufæri m.a. leikskólar grunnskóli (Rimaskóli) og framhaldsskóli (Borgarholtsskóli) , verslun og þjónusta í Spönginni sem og íþróttir og sundlaug (Grafavogslaug) í göngufæri.
Allar nánari upplýsingar gefur:
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 eða jason@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.