Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
thordis@lindinfasteignir.is kynna:
Langidalur 3, EskifirðiMjög rúmgott 3ja herb., 157,0 fm, raðhús ásamt bílskúr við Langadal, Eskifirði í Fjarðabyggð
Íbúð er skráð 120,0 fm og bílskúr 37,0 fm, alls 157,0 fm
Lýsing eignar: Anddyri með fataskáp, flísar á gólfi.
Stórt samliggjandi rými sem í er eldhús, sjónvarpshol og stofa ásamt gangi.
Flísar á eldhúsgólfi en plastparket á stofu og svefnherbergjum.
2 rúmgóð svefnherbergi með skápum eruí íbúðinni.
Hægt er að bæta 1-2 herbergjum við og hefur það verið gert í nokkrum eins húsum í hverfinu.
Baðherbergi, flísalagt, baðkar með sturtu, sturtuklefi, lítil innrétting. Ljósgráar flísar með marmaraútliti á gólfi og sturtuhorni en hvítar flísar á öðrum veggjum og framan á baðkari..
Þvottahús innan íbúðar. Flísar á Gólfi.
Dyr eru úr stofu út í bakgarðinn. Hellulögð verönd er meðfram bakhlið hússins.
Bílskúrinn er staðsettur í 5 bílskúra lengju á lóðinni og er góð aflöng geymsla inn úr honum.
Hitaveita kyndir íbúðina og bílskúrinn og hefur verið mjög hagstætt að kynda íbúðir í lengjunni.
Vel rekið húsfélag er starfrækt í raðhúsalengjunni og er greitt hóflegt gjald í framkvæmdasjóð.