Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali ásamt Páli Birgi Jónssyni aðstoðarmanni fasteignasala og nema til löggildingar
palli@lf-fasteignasala.is og
thordis@lf-fasteignasala.is kynna:
Langidalur 16, EskifirðiÞægilegt einbýlishús á einni hæð ásamt sambyggðum bílskúr.
Íbúðarhúsið skiptist í 3 svefnherbergi (hægt að bæta því fjórða við), eldhús, rúmgóða stofu með mikilli lofthæð og dyrum út stóran sólpall með skjólveggjum, baðherbergi með sturtuklefa, forstofu og rúmgott þvottahús með innréttingu. Gengið er í gegn um þvottahúsið í bílskúrinn.
Bílskúrinn er rúmgóður með gönguhurð á norðurhlið. Inn úr bílskúrnum er geymsla sem gæti nýst sem vinnuherbergi,
Stór sólpallur er vestan við húsið.
Hitaveita er í húsinu og gólfhiti.
Húsið er bjart og hátt til lofts og nýtist hver fermeter í húsinu mjög vel.
Stórt steypt upphitað bílaplan er framan við húsið.