Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu, Löngumýri 8B: Vel skipulagt raðhús í rólegri botnlangagötu, íbúðin er 85,6 fm að stærð. Húsið er byggt úr timbri árið 2015 og er klætt að utan með viðhaldsléttri báruklæðningu. Drenmöl í bílaplani og sólpallur á lóð. Innra skipulag: Þrjú svefnherbergi eru í húsinu, tvö þeirra með fataskápum. Eitt þessara herbergja er skráð sem geymsla en nýtist sem þriðja svefnherbergið. Flísalögð forstofa með góðum innbyggðum fataskáp. Borðstofa-, stofa og eldhús eru í opnu og björtu rými og útgengt út á lóð þar sem er lítill sólpallur með skjólgirðingu. Þvottahús með vinnuborði og flísum á gólfi. Í eldhúsi er spónlögð upprunaleg innrétting. Baðherbergi með flísum á gólfum, innrétting, spegill, upphengt wc og sturtuklefi. Niðurtekið loft og hvítar loftaþiljur. Ljósar flísar eru á votrýmum annars harðparket. Svæðaskiptur gólfhiti.
Fín íbúð.
Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is
Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.