Fasteignasalan Heimaland kynnir í einkasölu, Langahraun 21, íbúð 102 í HveragerðiUm er að ræða vel skipulagða íbúð á jarðhæð í nýlegu fjölbýlishúsi í Hveragerði. Húsið er byggt árið 2024.
Eignin er skráð samtals 115,4fm en geymsla í séreign er 12,59fm þar af.
Samkvæmt teikningu telur eignin forstofu, alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa er flísalögð með fataskáp
Alrými er parketlagt og samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu. Úr stofu er útgengt út á baklóð. Þar er hellulagður sólpallur í séreign og þaðan er gengið inn í geymsluna.
Eldhúsinnrétting er rúmgóð með eyju, innbyggður ísskápur og uppþvottavél í innréttingu.
Svefnherbergin þrjú eru parketlögð og eru fataskápar í þeim öllum.
Þvottahús er flísalagt með glugga, gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Baðherbergi er flísalagt með gólfsturtu, upphengdu wc og innréttingu.
Spennandi eign í nýjiu hverfi í Hveragerði sem vert er að skoða betur.
Allar nánari upplýsingar veita:
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, snorri@heimaland.is
Elísa Dagmar Björgvinsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala í löggildingarnámi, sími 868-7938, elisa@heimaland.is Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun.
www.heimaland.is, Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.