Byr fasteignasala kynnir í einkasölu LANGAHRAUN 11B, í Hveragerði. Fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í nýju hverfi sem kallast Kambaland.ÍBÚÐ 102 FYRSTA HÆÐ. Stærð 114,5 m², sem skiptist í íbúð 95,0 m² og geymslu 19,5 m². Sérinngangur er í íbúðina.Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðs... Sýna meira
Byr fasteignasala kynnir í einkasölu LANGAHRAUN 11B, í Hveragerði. Fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í nýju hverfi sem kallast Kambaland.ÍBÚÐ 102 FYRSTA HÆÐ. Stærð 114,5 m², sem skiptist í íbúð 95,0 m² og geymslu 19,5 m². Sérinngangur er í íbúðina.Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymsla. Í sameign er inntaksrými. TIL AFHENDINGAR Í LOK MAÍ 2022.Anddyri með fataskáp. Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er frá stofu á timburverönd. Eldhús með AEG keramik helluborði og ofni, stálvaskur og blöndurnartæki með handúðara.Hjónaherbergi með fataherbergi er inn af stofu/alrými. Barnaherbergin eru tvö, bæði með fataskáp. Baðherbergi með innréttingu, handlaug og blöndunartæki ofan á borði, vegghengt salerni, sturta og handklæðaofn. Tenging fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi. Geymsla er í sameign á jarðhæð, ásamt sameigninlegri geymslu/inntaksrými. Gólfhiti er í íbúðinni, ofn er í geymslu. Frágangur íbúðarÍbúðinni verður skilað fullfrágenginni, án megin gólfefna. Gólf baðherbergis ásamt veggjum sturtuhorna verður að hluta til flísalögð, 30x60 flísar.Allar hurðar eru yfirfelldar og hvítar að lit. Útveggir íbúðar og innveggir eru spartlaðir, grunnaðir og málaðir hvítir, loft er sparstlað og málað hvítt. Grunnmyndir allra innréttinga eru eins og teikningar frá arkitekt sýna. Reykskynjarar, slökkvitæki og eldvarnarteppi fylgja hverri íbúð.Vélræn loftræsting (útsog) er frá eldhúsi og baðherbergi. Steypt loft og innveggir í sameign og geymslu eru slípuð og máluð í lhvítum lit. Gólf sömu rýma eru máluð.Frágangur utanhússHúsið er byggt úr forsteyptum samlokueiningum, útveggir eru ljósgráir að lit. Burðarvirki þaks eru forsteyptar holplötur með þakdúk, þak er einhalla. Hurðir og gluggar eru timburgluggar frá BYKO, svartir að lit. Handrið og svalahandrið eru stálhandrið, álklædd, svört að lit að utanverðu. Framan við hús er hellulögð gönguleið. Lóð verður þökulögð og gróðurbeð jöfnuð án gróðurs. 11 bílastæði eru í sameign á lóð þar af eitt sér merkt stæði fyrir hreyfihamlaða. Lagnaleiðir eru út við bílaplan fyrir hverja íbúð, fyrir hleðslustöðvar rafbíla en hleðslustöðin sjálf er ekki uppsett.Vel skipulögð íbúð á neðri hæð með sérafnotareit í nýju hverfi við Kambana í Hveragerði. Stutt í alla helstu þjónstu, afþreyingu og útivist.Tölvuteikningar eru einungis til viðmiðunar- útskýringar á uppsetningu innra rýmis og til að sjá mögulega útlit eignarinnar. Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða eru gildandi ef upp kemur misræmi á milli þeirra og annarra gagna. Allt auglýsinga og kynningarefni t.d. þrívíddar myndir/teikningar og litir í þeim eru eingöngu til hliðsjónar ekki er um endanlegt útlit að ræða. Athygli er vakin á því að á meðan byggingarframkvæmdum stendur áskilur seljandi sér allan rétt til að gera tækni-, efnis- og útlitsbreytingar. Allt myndefni birt með fyrirvara – byggingarnefndarteikningar gilda. Ýtið hér fyrir staðsetningu. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á og er það 0.3% af endanlegu brunabótarmati.ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali, - stílisti - Irpa Fönn Hlynsdóttir, hefur lokið námi til löggildingar, - skrifstofa. Um skoðunarskyldu:Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.www.byrfasteign.is | Austurmörk 4, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala