Trausti fasteignasala og Auðun Ólafsson, löggiltur fasteignasali kynna bjarta og rúmgóða 2ja herbergja íbúð á fjórðu hæð í fallegu fjölbýlishúsi við Lönguhlíð í Reykjavík. Glæsilegt útsýni er úr stofu og frá svölum íbúðarinnar yfir miðborgina, Klambratún, Hallgrímskirkju og Perluna.Íbúðin skiptist í... Sýna meira
Trausti fasteignasala og Auðun Ólafsson, löggiltur fasteignasali kynna bjarta og rúmgóða 2ja herbergja íbúð á fjórðu hæð í fallegu fjölbýlishúsi við Lönguhlíð í Reykjavík. Glæsilegt útsýni er úr stofu og frá svölum íbúðarinnar yfir miðborgina, Klambratún, Hallgrímskirkju og Perluna.Íbúðin skiptist í rúmgott hol, rúmgóða stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Eigninni fylgir herbergi í risi með aðgangi að sameiginlegu baðherg og sér geymsla í kjallara. Í sameign er þvottahús og þurrkherbergi ásamt hjóla- og vagnageymslu.Eignin er skráð 82,1 fm sem skiptist i 68 fm íbúð, 6,7 fm herbergi í risi og 7,4 fm geymsla í kjallara.Allar frekari upplýsingar veitir Auðun Ólafsson, löggiltur fasteignasali í síma 894-1976 eða Nánari lýsing:Anddyri rúmgott með dúk á gólfi.Eldhús með fallegri upphaflegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél. Dúkur á gólfiStofa og borðstofa, björt og rúmgóð með miklu útsýni, dúkur á gólfi og útgengt á vestur svalir.Svefnherbergi með góðum fataskáp, dúkur á gólfi.Baðherbergi er flísalagt, upphengt saleri, rúmgóð sturtaHerbergi í risi er með plastparketi á gófli, þakgluggi og aðgengi að sameiginlegu salerni.Geymsla í kjallara er 7,4 fm og með glugga.Húsið er teiknað af Einari Sveinssyni og Gunnari Ólafssyni og var byggð á árunum 1946-1949 en hefur verið endurbætt verulega undanfarin ár, nýlega var allt húsið steinað og flestir gluggar endurnýjaðir. Hlutfallstala íbúðar í húsi nr. 23 er xx en xx í húsinu öllu. Langahlíð 19-25 er fjölbýlishús með fjórum stigagöngum og 32 íbúðum en hverri íbúð fylgir geymsla í kjallara og herbergi í risi. Tveir inngangar eru að húsinu austan- og vestanmegin. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.