LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 2ja herbergja útsýnisíbúð á þriðju hæð í margrómuðu fjölbýlishúsi við Lönguhlíð í Reykjavík. Glæsilegt útsýni er úr stofu og frá svölum íbúðarinnar yfir mi... Sýna meira
LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 2ja herbergja útsýnisíbúð á þriðju hæð í margrómuðu fjölbýlishúsi við Lönguhlíð í Reykjavík. Glæsilegt útsýni er úr stofu og frá svölum íbúðarinnar yfir miðborgina, Klambratún, Hallgrímskirkju og Perluna.Eignin skiptist í rúmgott og opið miðrými, rúmgóða stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi en henni fylgir hlutdeild í sameign og tvær geymslur, geymsla í kjallara og geymsla í risi. Geymslan í risi hefur verið nýtt sem aukaherbergi en þar er aðgengi að sameiginlegu salerni. Í sameign er þvottahús og þurrkherbergi ásamt hjóla- og vagnageymslu.Eignin er skráð 78,9 fm hjá HMS en þar af er geymsla í kjallara 5,8 fm og geymsla í risi 5,1 fm. Fasteignamat 2024 er 59.200.000 kr.Allar frekari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 663 2300 eða .Nánari lýsing: Opið miðrými með fataskáp, parket á gólfi.Eldhús með hvítri innréttingu, eldavél og innbyggðum kæliskáp, parket á gólfi.Stofa og borðstofa, björt og rúmgóð með miklu útsýni, parket á gólfi og útgengt á vestursvalirSvefnherbergi með góðum fataskápum, parket á gólfi.Baðherbergi, flísalagt með salerni, baðinnréttingu og baðkari. Geymsla í risi með dúk á gólfi, hefur verið nýtt sem auka herbergi. Skráð 5,1 fm en nýtanlegur gólfflötur stærri.Geymsla í kjallara (5,8 fm) með hillum, málað gólf.Húsgjöld íbúðar eru 34.201 kr á mánuði en þá er allur almennur rekstur húsfélagsins innifalinn, rafmagn í sameign, húseigendatrygging, þrif sameignar og sorpgeymslu sem og einnig framkvæmdasjóður sem rennur beint í húsfélagið Langahlíð 19-25.Húsið er teiknað af Einari Sveinssyni og Gunnari Ólafssyni, var byggð á árunum 1946-1949 en hefur verið endubætt verulega að undanfarin ár, nýlega var húsið allt endursteinað og skipt um flesta glugga í íbúðinni. Hlutfallsleg eign íbúðar í húsi nr. 23 er 12,5% en 2,89% í húsinu öllu. Langahlíð 19-25 er fjölbýlishús með fjórum stigagöngum og 32 íbúðum en hverri íbúð tilheyrir geymsla í kjallara og geymsla í risi. Tveir inngangar eru að húsinu, austan- og vestanmegin.Allar frekari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 663 2300 eða . Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA