Einstakt tækifæri í ferðaþjónustu - fjögur sumarhús í fullum rekstri á frábærum stað við Seyðisfjörð. Húsin eru í góðu ástandi og hefur þeim alla tíð verið haldið vel við. Til sölu er félag um rekstur húsana sem einnig á Öldugötu 12 á Seyðisfirði. Smelltu hér til að sjá Öldugötu 12! Húsin standa á frábærum útsýnisstað í norðanverðum Seyðisfirði, ca. 2 km frá þéttbýlinu. Þrjú af húsunum eru eins, þar eru stofa og eldhús í opnu rými með parket á gólfi, flísalagt baðherbergi með sturtu og þrjú svefnherbergi með parket á gólfi. Stór timburverönd með heitum potti er við öll húsin. Fjórða húsið og það nýjasta er sambærilegt en með einu svefnherbergi. Húsin standa öll á sér lóð og samtals eru lóðirnar fjórar 15.708,9 m². Möguleiki á fimmtu lóðinni er til staðar.