Nýtt á skrá! Lækjasmári 23 - Rúmgóð 2ja herb. íbúð með suðursvölum!
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir fallega og vel skipulagða 66,4 fermetra 2ja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) með góðum svölum til suðurs í fallegu fjölbýlishúsi við Lækjasmára 23 í Kópavogi. Stofa er rúmgóð og opin við eldhús með góðum gluggum til suðurs og útgengi á svalir. Þvottaaðstaða er innan baðherbergis og sérgeymsla í kjallara. Nýlegt harðparket er á íbúðinni.
Lóðin er afar snyrtileg með hellulagðri stétt fyrir framan hús. Garðurinn er vel hirtur, tyrfður og með fallegum gróðri. Sameign er afar snyrtileg og er nýlega búið að mála stigagang og skipta um teppi. Sameiginleg bílastæði eru á framlóð hússins.
Frábær staðsetning við alla verslun og þjónustu (t.d. Smáralind og Smáratorg). Leikskóli (Lækur) og grunnskóli (Smáraskóli) í göngufjarlægð. Stutt í útivistarparadís við Kópavogslæk með glæsilegum göngu- og hjólaleiðum. Íþróttasvæði Breiðabliks og Sporthúsið í næsta nágrenni. Auk þess er stutt í félagsstarf eldri borgara við Gullsmára.
Nánari lýsing:Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Stofa: Er rúmgóð, björt og með harðparketi á gólfi. Gluggar til suðurs og útgengi á svalir.
Svalir: Snúa til suðurs inn í bakgarð hússins.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri hvítri/viðar eldhúsinnréttingu. Bakaraofn, keramik hellluborð, tengi fyrir uppþvottavél og vifta.
Svefnherbergi: Með harðparketi á gólfi, góðum skápum og glugga til suðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og á veggjum. Baðkar með sturtutækjum, innrétting við vask, upphengt salerni og handklæðaofn. Gott rými er í enda baðherbergis fyrir þvottavél og þurrkara.
Kjallari:Sérgeymsla: Er 7,1 fermetrar að stærð og með máluðu gólfi.
Vagna- og hjólageymsla: Er staðsett í sameign hússins með útgengi á framlóð.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is