Fasteignasalan Domus á Blönduósi kynnir glæsilegt einbýlihús með innbyggðum bílskúr á Hvammstanga. Lækjargata 8 er samtals skráð 179,6 fermetrar, þar af bílskúr 35,4 fermetrar, byggt úr steinsteypu árið 1977. Á neðri hæð er um 35 fermetra rými sem hefur verið leigt út, ýmist í fastri leigu eða sem A...
Sýna meira
Fasteignasalan Domus á Blönduósi kynnir glæsilegt einbýlihús með innbyggðum bílskúr á Hvammstanga. Lækjargata 8 er samtals skráð 179,6 fermetrar, þar af bílskúr 35,4 fermetrar, byggt úr steinsteypu árið 1977. Á neðri hæð er um 35 fermetra rými sem hefur verið leigt út, ýmist í fastri leigu eða sem AirBnb með tilheyrandi leyfi.Á efri hæð er gengið inn í flísalagða forstofu með fataskáp. Þaðan er komið inn á gang með stofu til hægri, eldhús beint áfram og til vinstri er gangur með þvottahúsi, svefnherbergjum og snyrtingu. Gólfefni eru plastparket á stofu, gangi og svefnherberbergjum, korkflísar á eldhúsi og flísar á baðherbergi, þvottahúsi og forstofu.Eldhús er með góðri innréttingu frá 2011, en þá var jafnframt lagt nýtt gólfefni. Inn af eldhúsi er gott búr með hillum. Á hæðinni eru 3 svefnherbergi og skápar í tveimur stærri herbergjunum. Stofan er björt og rúmgóð. Á svefnherbergisgangi er útskot þar sem var stigaop niður í kjallarann sem hefur verið lokð, gólf ófrágengið og vel mögulegt að opna á ný. Stálburðargrind stiga er geymd í bílskúr og fylgir eigninni. Í þessu útskoti er jafnframt lúga upp í þakrými með aðgengi til skoðunar og viðhalds ef með þarf. Útskotinu mætti líka breyta í fataherbergi eða geymslu ef vill. Eitt svefnherbergið á hæðinni hefur verið stækkað með því að sameina tvö minni, svefnherbergin eru því tvö stór með skápum og eitt lítið. Þvottahús er við hlið forstofu, þar eru tenglar fyrir þvottavél, pláss fyrir frystiskáp, vinnuborð með vaski og skápar á vegg yfir borði. Litlar svalir eru við hlið aðalinngangs yfir bílskúrsdyrum. Á suðurhlið eru svalir meðfram stofu og eldhúsi og svo hellulagður pallur í framhaldi af þeim meðfram húshliðinni. Svalahurð er í stofu og svo aðrar dyr af svefnherbergisgangi með nýlegri útihurð (2009) út á hellulagða pallinn. Af hellulögninni eru steyptar tröppur niður í garðinn, þær þarfnast viðhalds. Á svefnherbergisganginum er jafnframt baðherbergi sem var endurnýjað 2012 með sturtuklefa úr gleri, handklæðaofni, gólfhita og fllísalagt í hólf og gólf.Inngangur á neðri hæð er við hlið bílskúrshurðar. Komið er inn í flísalagða forstofu, þaðan gengið inn á gang með lítilli og einfaldri eldunaraðstöðu. Til vinstri er baðherbergi með dúklagt gólf og hlaðinn sturtuklefa, til hægri er hurð inn í bílskúr. Inn af ganginum er stórt svefnherbergi með útskoti/setukrók. Gólfefni á ganginum og herberginu er nýlegt plastparket. Innkeyrsla er hellulögð með snjóbræðslukerfi tengt affalli af húsinu og með sjálfvirkri innspýtingu til frostvarnar. Húsið stendur á hornlóð sem er skráð 950 fermetrar. Garðurinn er vel gróinn og skjólgóður. Skjólveggir eru við húsið að sunnanverðu. Bílskúr er rúmgóður og bjartur með skápum, vinnuborði og sjálfvirkum hurðaopnara.Gallar: Móða er víða á milli glerja í opnanlegum fögum. Skemmd á parketi í stofu á einum stað. Í búri er skemmd á gólfdúk. Hellulögn meðfram húsi að sunnan er sigin og þarfnast lagfæringa. Steyptar tröppur í garði þarfnast lagfæringa.Nokkrar helstu framkvæmdir undanfarin ár: Stofuglugga var breytt (tvískipt) árið 2008. Eldhús var endurnýjað 2011. Kjallaragluggi stækkaður 2012. Baðherbergi endurnýjað 2012. Þak var skoðað og metið í lagi 2018. Borið á þakkant 2018. Málað að utan og borið á alla glugga 2019, hraunaðir fletir utanhúss sílanbornir 2020. Borið á skjólveggi 2020. Ofnlokar flestir endurnýjaðir, ofnar endurnýjaðir að hluta.Upplýsingar veita Stefán Haraldsson s 440 6030 eða 894 1669 eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 440 7972