Borg fasteignasala kynnir: Glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum við Lækjarás 8 í Reykjavík. Á efri hæð eru stórar stofur og opið eldhús, þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Á neðri hæð er möguleiki á 90m2 auka íbúð með stofu, tveimur svefnherbergjum, eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergi. Á neðri hæð er einnig stór bílskúr, þvottahús og rúmgott auka anddyri með miklu skápaplássi. Stór sólpallur, heitur pottur og gróðurhús í garðinum.
Húsið er skráð 368m2 og er á tveimur hæðum.Nánari lýsing
Efri hæð:
Anddyri: Rúmgott með flísum á gólfi. Stórir hvítir veggháir fataskápar.
Stofa: Stór tvískipt stofa með parketi á gólfi. Stórar svalir til vesturs með fallegu útsýni yfir Elliðaárdalinn. Mögulegt væri að setja upp arinn í stofunni.
Eldhús: Hvít innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Stór eyja með eldavélahellu og miklu skúffuplássi. Borðplatan er marmari. Ofnar eru í borðhæð.
Þrjú stór svefnherbergi eru á efri hæð með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Við svefnherbergin er baðherbergi með upphengdu salerni, handklæðaofni, sturtu með gleri og innréttingu. Flísar á gólfi og veggjum.
Salerni: Við hjónaherbergið er sér salerni. Hvít innrétting með tveimur vöskum og upphengt salerni. Stórir skápar og flísar á gólfi og veggjum.
Hæðin er öll með nýlegu harðparketi en baðherbergin með nýlegum flísum, einnig er búið að skipta um tengla og rofa á efri hæð. Sólpallur: Gengt anddyrinu er gengið út á stóran suður-sólpall sem er klæddur með viðhaldsfríum harðviði. Heitur pottur og skjólveggur.
Neðri hæð:
Teppalagður stigi er á milli hæða.
Anddyri: Á neðri hæð er gengið inn í stórt anddyri frá bílastæði. Rýmið er stórt og þar eru nýlegir fataskápar.
Bílskúr: Flísalagður bílskúr. Nýleg bílskurðshurð. Úr bílskúrnum er innangengt í anddyri á jarðhæð.
Þvottahús: Á jarðhæð er stórt þvottahús með flísum á gólfi.
Aukaíbúð á jarðhæð:Fullbúin auka íbúð er á jarðhæð. Íbúðin er um 90m2 með tveimur stórum svefnherbergjum, stofu, eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergi með sturtu. Bílastæði fyrir allt að 5 bíla er framan við húsið.
Garðurinn er fallega hannaður með stórum hleðslusteinum við lóðarmörk.
Nýlegt gróðurhús er við suður-horn lóðar.
Búið er að setja nýtt dren í kring um húsið og nýlega var settur nýr þakkantur og þak málað. Nánasta umhverfi:
Eignin er í rólegri götu á eftirsóknarverðum stað. Stutt í skóla, leikskóla, sundlaug, íþróttir og allar helstu verslanir og þjónustu. Fallegar hjóla- og gönguleiðir um Elliðaárdalinn, stutt í einstaka náttúru.
Einungis er hægt að skoða húsið gegn því að bóka skoðun hjá fasteignasala.
Upplýsingar veitir Davíð Ólafsson fasteignasali í síma 897-1533 eða david@fastborg.is