Miklaborg kynnir:
Björt og rúmgóð efri sérhæð auk riss í einni vinsælustu götu Vesturbæjar. Eignin hefur verið þónokkuð mikið endurnýjuð að innan á síðustu árum. Fimm svefnherbergi.
NÁNARI LÝSING: Gengið inn um sérinngang upp steinsteyptan stiga á stigapall sem skiptir hæðinni og risinu.
Neðri hæð: Gengið inn af stigapalli í hol sem leiðir þig í allar vistarverur íbúðarinnar. Eldhús, borðstofa og stofa eru í einu samliggjandi rými með útgengt á svalir í suður. Eldhús er með nýlegri innréttingu og tækjum. Eldunareyja skilur að stofur og eldhús. Hjónaherbergi er rúmgott með góðum upprunalegum skápum og útgengt á svalir í austur. Tvö góð barnaherbergi. Baðherbergið er upprunalegt og er með baðkari og glugga.
Ris: Gengið upp stiga í alrými. Alrýmið skiptist í sjónvarpshol og stofu. Baðherbergið er nýlega endurnýjað og án sturtu/baðkars en auðvelt að koma fyrir baðkari og eru allar lagnir til þess. Tvö góð svefnherbergi sem eru undir súð.
GÓLFEFNI: Fallegt harðparket er á flestum gólfum nema teppi er á stigum og flísar á baðherbergjum.
Fyrir um 10 árum var skipt um járn á þaki og síðastliðið sumar var bæði skólplögn og drenlögn endurnýjuð. Kominn er tími á endurmúrun og endurnýjun á gluggum í húsinu og liggur tilboð fyrir frá því í fyrra. Stefnt er á að fara í þessar framkvæmdir á næstunni.
Auðvelt er að skipta eigninni í tvær íbúðir aftur eða nýta hana fyrir stóra fjölskyldu. Eign með mikla möguleika.
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg,.is






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu































| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|---|---|---|---|
| 8 | 162,20 m² | 155.000.000 kr. 31. maí 2026 | 34.500.000 kr. 31. júlí 2012 |
| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 31.05.2026 Nánar | 162,2 m² | 955.610 kr. | 155.000.000 kr. |
0001 | - | - | - | 39.500.000 kr. 11. febrúar 2022 |
0301 | - | - | - | 23.900.000 kr. 26. nóvember 2014 |
0101 | - | - | - | 75.000.000 kr. 27. september 2020 |