202,7 fm endaraðhús á tveimur hæðum við Kvistavelli 18 í Hafnarfirði. Eignin skiptist þannig að neðri hæðin er 78,1 fm, efri hæðin 91,6 fm og bílskúrinn 33,0 fm, samtals 202,7 fm skv. HMS. Til viðbótar við birt flatarmál er búið að setja sólskála yfir svalir á efri hæð, ca 26,5 fm.
Neðri hæð: Forstofa með skápum. Eldhús, borðstofa og stofa í björtu alrými, útg. á sólpall. Gestasalerni er á hæðinni. Stigi upp á efri hæð úr alrými. Efri hæð: Rúmgott sjónvarpshol. Útg. á yfirbyggðar stórar svalir, opnanleg glerlokun. Fjögur svefnherbergi eru á hæðinni, skápar í öllum. Baðherbergi meðsturtu. Bílskúr: Innangengt er í bílskúrinn úr forstofu. Hiti, rafmagn, vatn og hurðaopnari, epoxy gólfefni. Inn af bílskúrnum er geymsla og þaðan er útg. í garð. Lóðin: Glæsilega frágengin. Stórt bílaplan með snjóbræðslu að hluta. Bakatil er rúmgóður sólpallur með heitum potti og geymsluskúr. Grasverönd er svo í framhaldi af sólpallinum.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.