Nes fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:
Kvíaholt 16, 310 Borgarnesi. Um er að ræða mjög fallegt 159,6 fm einbýlishús með innbyggðum bílskúr á einni hæð byggt 2002. Þar af er bílskúr 29,9 fm skv. skráningu HMS.Húsið er kanadískt einingahús, mjög vandað og lóðin skemmtilega frágengin með steyptu bílaplani og hellulagðri gangstétt sem gengur í sveig meðfram húsinu og afmarkast af lágum hlöðnum vegg. Gluggar eru með frönsku yfirbragði sem setur skemmtilegan svip á húsið.
Á lóðinni er rúmgóður sólpallur með háum skjólveggjum og heitum potti.
Nánari lýsing:Forstofa er rúmgóð. Þar er þvottahús á vinstri hönd. Úr þvottahúsi er innangengt í bílskúrinn. Úr forstofu er gengið inn í hol. Þaðan er gengið í baðherbergi, 2 svefnherbergi, eldhús og stofur. Gengið er úr borðstofu út á sólpallinn.
Forstofa: Flísar á gólfi og stór fataskápur.
Þvottahús: Er mjög stórt með mjög rúmgóðri hvítri innréttingu góð vinnuaðstaða og mikið skápapláss. Gólf er flísalagt.
Bílskúr: Er með flísar á gólfi. Góð rafdrifin bílskúrshurð og göngudyr út á bílaaplan. Vinnuborð og verkfæraskápar á vegg.
Stofa og borðstofa: Eru samliggjandi, fallegt og bjart rými, upptekið loft og parket á gólfi. Mjög fallegur arinn í stofunni, flísalagur að hluta, setur skemmtilegan svip á rýmið.
Eldhús: Parket á gólfi. Mjög rúmgóð innrétting með eyju. Helluborð og bakarofn í vinnuhæð. Uppþvottavél er í innréttingu.
Baðherbergi: Er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf. Sturta og hornbaðkar. Hvít innrétting og vegghengt salerni. Gólfhiti er í baðherberginu.
Svefnherbergi: Eru 2, bæði parketlögð með fataskáp. Fataskápar á heilum vegg í hjónaherbergi.
Lóðin: Er falleg og vel hirt með grasflöt, runnum og trjágróðri og er aðkoma að húsinu frágengin og öll hin snyrtilegasta.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Kostnaður kaupanda:Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.