Nýtt á skrá! Kuggavogur 3 Reykjavík - Rúmgóð íbúð með stórri verönd, þvottaherbergi og bílastæði í bílakjallara.Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar fallega og rúmgóða 71,4 fermetra 2ja herbergja íbúð með rúmlega 20 fermetra verönd í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu við Kuggavog 3 í Reykjavík. Fallegt útsýni út á sundin, að Snarfarahöfn og Úlfársfelli.
Rúmgott alrými sem er opin stofa við eldhús. Sér bílastæði í lokuðum bílakjallara. Útgengi úr stofu á stóra afgirta verönd (sérafnotaflöt) inn í fallegan bakgarð sem er tyrfður lyngtorfi, garðbekkjum, kvöldlýsingu og leiktækjum. Gott þvottaherbergi inn af íbúð. Góð 8,9 fermetra sérgeymsla á jarðhæð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu. Sameign er snyrtileg með flísum á sameiginlegri forstofu og teppi á stigagöngum. Lyklalaust aðgengi á flestum hurðum í sameign og kjallara. Nýlegt myndavélakerfi í bílakjallara. Myndavéladyrasími í íbúðum.
Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu nýlegu fjölskylduhverfi í Vogabyggð í Reykjavík. Leikskóli í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðaárvoginn. Mikil útivist allt í kring og fallegt umhverfi. Laugardalurinn í næsta nágrenni.
Nánari lýsing:Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Stofa: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og gluggum til inn í bakgarð með fallegu útsýni. Stofa rúmar setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús. Útgengi á stóra verönd frá stofu.
Verönd (sérafnotaflötur): Er stór (rúmlega 20 fermetrar) afgirtur og með fallegu útsýni út á sundin. Timburklæddur og snýr inn í bakgarð.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri sprautulakkaðri eldhúsinnréttingu frá Nobila (GKS). Innbyggður kæliskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, spansuðuhelluborð, bakaraofn og háf í efri skáp. Stýranleg lýsing undir skápum og útloftun.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og falleg sprautulökkuð innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Handklæðaofn, upphengt salerni og útloftun.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og útloftun.
Svefnherbergi: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum inn í bakgarð.
Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 8,9 fermetrar að stærð. Málað gólf.
Bílastæði í lokuðu bílskýli: Vel staðsett. Tvær innkeyrsluhurðir í bílakjallara með myndavélakerfi sem nema skráð bílnúmer. Rafhleðslukerfi komið upp í bílakjallara.
Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett við bílageymslu og með útgengi á baklóð hússins.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is