Heimili fasteignasala og Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu Krókatún 15 á Akranesi sem er efri hæð í tvíbýlishúsi með sér inngangi ásamt sérstæðum bílskúr. Húsið er staðsteypt tveggja hæða íbúðarhús klætt að utan með lituðu trabissu stáli, þak er svokallað valmaþak. Hú... Sýna meira
Heimili fasteignasala og Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu Krókatún 15 á Akranesi sem er efri hæð í tvíbýlishúsi með sér inngangi ásamt sérstæðum bílskúr. Húsið er staðsteypt tveggja hæða íbúðarhús klætt að utan með lituðu trabissu stáli, þak er svokallað valmaþak. Húsið er byggt 1947 og er samtals 145,4 fm þar af bílskúr 45 fm sem er sérstæður og byggður árið 1975.Húsið er vel staðsett í eldri hluta Akranesbæjar og stendur á 476,4 fm eignarlóð.Nánari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 898-2017, tölvupóstur .Nánari lýsing:Íbúðin er á annari hæð hússins og er gengið inn í eignina um útitröppur. Íbúðin er þriggja til fjögurra herbergja og skiptist í forstofu með flísum á gólfi, hol, borðstofa/stofa og eldhús með nýlegu harðparketi, eldri innrétting og tæki eru í eldhúsi. Tvö svefnherbergi með plastparketi og eldri fataskápum. Baðherbergi flísalagt/málað með baðkari og tengi fyrir þvottavél. Eigninni tilheyrir hlutdeild í sameiginlegu þvottahúsi á neðri hæð hússins, innangengt er úr eldhúsi í þvottahúsið. Eigninni tilheyrir risið sem er innangengt úr forstofu og nýtist að hluta sem geymsla, en er allt undir 1,8 m á hæð nema 1,9 fm. Plastparket er á gólfinu og loftið málað. Íbúðin er hituð upp með rafmagni en hitaveita hefur verið lögð í húsið. Bílskúr er sérstæður og ekki fullbúinn og er staðsettur í suðaustur horni lóðar. Sér bílastæði fylgir fyrir framan bílskúrshurð.Húsið er staðsteypt og klætt að utan með lituðu trabissu stáli og þarfnast viðhalds, þak er svokallað valmaþak og hefur ekki verið endurnýjað. Gluggar og gler þarfnast viðhalds, ekki er vitað um ástand vatnslagna, frárennslislagna eða raflagna. Lóðin, sem er 476,4, fm er sérlega snyrtileg og frágenginHér er um að ræða rúmgóða sér hæð sem býður upp á mikla möguleika í heillandi bæjarfélagi sem er einstaklega fjölskylduvænt þar sem gott er að búa, ala upp börn og eldast. Til fróðleiks:Heimamenn segja að það sé mögulegt að á Akranesi búi hamingjusömustu íbúar landsins enda landslagið, sagan, menningin og samfélagið einstakt. Akranes er heilsueflandi samfélag þar sem unnið er að því að fá viðurkenningu UNICEF sem barnvænt sveitarfélag. Á Akranesi eru starfandi tveir grunnskólar, fjórir leikskólar ásamt Fjölbrautaskóla Vesturlands og Tónlistarskóla Akraness. Þar er einnig rekið öflugt íþrótta- og frístundastarf. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi. Heimili fasteignasala – á traustum grunni í 20 ár.Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.