Vel skipulögð 3ja herbergja íbúð ásamt bílskúr í litlu fjölbýli við Krókahraun 8 Hafnarfirði.
Eignin skiptist þannig að íbúðin er 93,6 fm og bílskúr 32 fm, alls 125,6 fm skv fasteignaskrá.Nánari lýsing:Forstofa og hol með parket á gólfi og opnu fatahengi
Eldhús með hvítri innréttingu, stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp. Ofn í vinnuhæð og parket á gólfi.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi, útgengt út á suðvestur svalir. Opið inn í eldhús úr stofu.
Þvottahús er innaf eldhúsi með opnanlegum glugga, stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er innaf eldhúsi með hillum.
Hjónaherbergi mjög rúmgott með skápum og parket á gólfi
Barnaherbergi með skápum og parketi á gólfi
Baðherbergi með opnanlegum glugga, sturtu og vaskinnréttingu. Dúkur er á gólfi og hluta veggja.
Bílskúr með hurðaopnara, heitt og kalt vatn og gluggi í enda. Eftir að klæða bílskúr að innan.
Sameiginleg
hjóla og vagnageymsla með geymslu hillum fyrir hverja íbúð.
Sameign snyrtileg, gangur teppalagður og málaður 2023.
Húsið málað 2021
Vel staðsett eign í Hafnarfirði þar sem stutt er í leikskóla, skóla og miðbær Hafnarfjarðar er í göngufæri.Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is