Björt 5 herbergja íbúð í góðu fjölbýlishúsi á 2. hæð við Kóngsbakka 14 í Reykjavík. Suðursvalir.
Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og sér þvottaherbergi innan íbúðar. Búið er að minnka stofu og búa til 4. svefnherbergið. Auðvelt að breyta til baka kjósi fólk það. Íbúðinni fylgir 7,4 fm geymsla í kjallara og 9,5 fm svalir í suður. Fjölbýlið hefur verið mikið endurnýjað síðustu ár. Nánari lýsing:Forstofa/hol með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Stofa er með parketi á gólfi. Búið er að minnka stofuna og gera auka svefnherbergi.
Eldhús er með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Tengi fyrir uppþvottavél. Gengið út á suður svalir.
Hjónaherbergi er með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi IIImeð fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi IV með parketi á gólfi.
Baðherbergi, baðkar með sturtuaðstöðu. Ný blöndunartæki, flísar á gólfi og upphengt WC, handklæðaofn og skáp með vaski og spegli.
Þvottahús er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Geymsla er 7,4 fm er kjallara ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.
Sameiginlegar hleðslustöðvar eru á vegum húsfélagsins í Kóngsbakka 2-16 frá ON.
Frá árinu 2020 hafa eftirfarandi framkvæmdir átt sér stað:Þak endurnýjað 2020. Hluti af gleri og gluggum endurnýjaðir bæði 2020-2021 og 2023-2024. Austurhlið og gaflar voru klæddir 2023-2024.
Hús múrviðgert og málað 2023-2024. Svalagólf löguð og máluð og skipt um handlista á svölum 2022-2023.
Góð eign á góðum stað í Breiðholtinu. Svæðið er barnvænt, fallegar gönguleiðir og stutt í Elliðaárdalinn og alla helstu verslun og þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Ólafs lögg. fasteignasali í síma 842-2212, to@remax.is.