Eignaver 460-6060
Klettatún 4 íbúð 201 Akureyri.
Falleg, vönduð og skemmtilega hönnuð 3ja herbergja íbúð í fjórbýli á vinsælum stað í Naustahverfi. Íbúðin er 82,3 fm. Nánari lýsing:
Forstofa, flísar á gólfi og fataskápur.
Hol/gangur, vinylparket á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö, vinylparket á gólfi og fataskápar í þeim báðum.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, Innrétting, upphengt WC, baðkar með sturtutækjum, handklæðaofn og gluggi með opnanlegu fagi.
Stofa og eldhús koma saman í einu rými.
Eldhúsinnrétting er með góðu skápaplássi, spónlögð eikarinnrétting, vinylparket á gólfi og þar er farið út á
svalir til suðurs. Stofan er rúmgóð og björt, parket á stofugólfi.
Þvottahús er í íbúð, flísar á gólfi, innrétting og skolvaskur.
Geymsla er inn af þvottahúsi, flísar á gólfi og góður fataskápur með rennihurðum.
ATH: Auvelt að nýta sem barna eða gestaherbergi þar sem opnanlegt fag er á glugga.
Annað:
- Frábær staðsetning, örstutt frá grunn- og leikskóla.
- Skemmtilega hönnuð íbúð þar sem fermetrar nýtast sérlega vel.
- Hiti í gólfi á baðherbergi og forstofu.
- Gróðursælt allt í kring.
- Snjóbræðsla í tröppum og í plani að hluta.
- Gott útsýni er úr íbúð og rúmgott á milli húsa.
- Sameiginlegur geymsluskúr fyrir framan húsið.
- Inntaksrými er undir tröppum.
Eignin er í
einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu.
Nánari upplýsingar veita:
Begga s: 845-0671 /begga@eignaver.is
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is