Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424 ) kynnir í einkasölu: Klettamói 7, Íbúð 0102. Falleg 3ja herbergja , 63,8m2 íbúð á jarðhæð auk 3,9m2 geymslu. Íbúðin er með sérinngang. Íbúðin skilast með uppþvottavél og ísskáp og ljósum í öllum rýmum. Sérafnotaflötur er í hásuður! Skemmtilegur inngarður er ... Sýna meira
Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424 ) kynnir í einkasölu: Klettamói 7, Íbúð 0102. Falleg 3ja herbergja , 63,8m2 íbúð á jarðhæð auk 3,9m2 geymslu. Íbúðin er með sérinngang. Íbúðin skilast með uppþvottavél og ísskáp og ljósum í öllum rýmum. Sérafnotaflötur er í hásuður! Skemmtilegur inngarður er á milli húsanna með leiktækjum ofl. Eignin er laus við kaupsamning. Stutt frá helstu þjónustu, skóla og íþróttasvæðum !** Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á **Eignin skiptist svo:* Rúmgott anddyri með fataskáp.* 2 svefnherbergi með góðum fataskápum. * Stofu þaðan sem utangengt er á sérafnotasvæði í há-suður. Stofa og eldhús eru í opnu rými.* Eldhús með innréttingu frá HTH, helluborði, bakaraofn og háf frá AEG ásamt ísskáp og uppþvottavél.* Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengdu salerni, snyrtilegri innréttingu og sturtu.* Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.* Nýtt harðparket er á öllum gólfum og flísar á baði. * Sér geymsla fylgir íbúð. Ekki er sameiginleg hjóla-og vagnageymsla í húsinu.* Lagnaleið að bílastæðum fyrir hleðslustöðvar. Húsið er staðsteypt fjölbýlishús á tveimur hæðum við miðbæ Þorlákshafnar. Í húsinu eru 6 íbúðir ásamt geymslum.Lögð er áhersla á að öll umgjörð hverfisins sé hlý og aðlaðandi með lágstemmdri byggð sem skiptist í nokkra kjarna sem tengjast saman með vistgötum.FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn. Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:Við Þorlákshöfn er rómaður golfvöllur sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna!Hér eru einstaklega góður grunn- og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða!Verslun og þjónusta:Hér má m.a. finna:VERSLUN KRÓNUNNARApótekarann.Bakaríið Café Sól (facebook: café sól)Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)Vínbúðina.Veitingastaðina:Thai Sakhon veitingahús (facebook: Thai Sakhon Restaurant)Caffe Bristól Bauhaus (facebook: Caffe Bristól)Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn) og Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.Hér er mjög góð heilsugæsla.Hér er tannlæknir.Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins: Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss)Landsbankinn Tómstundir og afþreying: Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf á rómuðum golfvelli. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri. Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.Jógastúdíó (Jógahornið).Öflug sjúkraþjálfun.Afþreying er hér af ýmsum toga:hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. Einnig er hér:Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.)Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver)O.sfr. o.s.frv. o.s.frv. :)** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is