Klettahlíð 8 - Um er að ræða snyrtilegt 99 fm hús á afar stórri lóð en lóðin er skráð 825 fm og er hún mjög skjólgóð. Húsið er 4ra herbergja og var tekið talsvert í gegn samkvæmt fyrri eigendum.
Seljandinn skoðar að veita seljendalán fyrir eigninni og ýmis skipti, húsið er laust við kaupsamning.
Nánari lýsing eignar: Forstofa með flísum á gólfi, opin stofa í björtu alrými sem saman stendur af eldhúsi, borðstofu og stofu, eldhúsið var tekið í gegn samkvæmt fyrri eigendum árið 2019, innbyggð uppþvottavél og gaseldavél. Hjónaherbergi með harðparekti á gólfi og útgengt út á suðvestur verönd, barnaherbergi einnig með harðparketi á gólfi. 15 fm herbergi sem var áður geymsla, getur nýst sem svefnherbergi eða sjónvarps/vinnurými, þaðan er einnig útgengt út á pallinn. Baðherbergi með glugga og epoxí á gólfi, sturtu og snyrtilegri innréttingu. Rúmgott þvottahús með flísum á gólfi og útgengt út.
Um er að ræða vel staðsett hús á afar skjólgóðri lóð sem er samkæmt fmr 825 fm að stærð og bíður upp á ýmsa möguleika, miðað við nýtingarhlutfall lóðarinnar væri mögulega hægt að sækja um 250fm stækkun hjá Hveragerðisbæ.
Nánari upplýsingar veitir: Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is