Klettaborg 66
Einstaklega falleg og mjög mikið endurnýjuð fjögurra herbergja endaraðhúsaíbúð með innbyggðum bílskúr. Glæsilegt útsýni er úr eigninni sem er samtals 150,2 m
2. þar af bílskúr 24 m
2*** Getur verið laus til afhendingar við kaupsamning ***
*** Eign sem vert er að skoða***Eignin skiptist í: neðri hæð, forstofu, snyrtingu, eldhús og stofu ásamt sambyggðum bílskúr. Á efri hæð er gangur, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og geymsla.
Neðri hæð: Forstofa er með harðparket á gólfi gluggi við útdyrahurð.
Snyrting er inn af forstofu, þar er upphengt salerni, og opnanlegur gluggi.
Eldhús er með harðparketi á gólfi, falleg innrétting með miklu skápaplássi, innbyggður ísskápur og uppþvottavél og ljósar flísar á bekkjarplötu og á vegg yfir skápum.
Stofa er björt með ljósu harðparketi á gólfi. Milli stofu og eldhúss er hurð út á stóra steypta verönd með heitum potti.
Stigi steyptur á milli hæða.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með ljósu harðparketi parketi á gólfi og tvö með fataskápum. Úr hjónaherbergi er gengið út á svalir til vesturs.
Baðherbergi er mjög fallegt, með flísum á gólfi og dökkum plötum á veggjum. dökk rúmgóð innrétting með hvítri bekkjarplötu og frístandandi vask, upphengt salerni og handklæðaofn.
Geymsla er með harðparketi á gólfi.
Bílskúr er skráður 24m
2 og er innangengt í hann í gegnum forstofu og þar er rafdrifinn hurðaropnari. Innrétting í enda bílskúrs er með stæði fyrir þvottavél og þurrkara ásamt vask og fallegar ljósar flísar á gólfi.
Annað-Vel um gengin og mjög snyrtileg eign
-Stór steypt verönd með heitum potti sem snýr til vesturs.
-Næturlýsing í stiga milli hæða
-Falleg innfelld lýsing meðal annars yfir borðstofuborði og á baðherbergi
-Innfeld blöndunartæki.
-Hiti er í öllum gólfum
-Mjög fallegt útsýni
-Góð staðsetning, miðsvæðis á Akureyri stutt í verslun og aðra þjónustu
Nánari upplýsingar í síma 571-9991 eða á fsfasteignir@fsfasteignir.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.