Klettaborg 66
Einstaklega falleg og mjög mikið endurnýjuð fjögurra herbergja endaraðhúsaíbúð með innbyggðum bílskúr. Glæsilegt útsýni er úr eigninni sem er samtals 150,2 m
2. þar af bílskúr 24 m
2*** Getur verið laus til afhendingar við kaupsamning ***
*** Eign sem vert er að skoða***Eignin skiptist í: neðri hæð, forstofu, snyrtingu, eldhús og stofu ásamt sambyggðum bílskúr. Á efri hæð er gangur, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og geymsla.
Neðri hæð: Forstofa er með harðparket á gólfi gluggi við útdyrahurð.
Snyrting er inn af forstofu, þar er upphengt salerni, og opnanlegur gluggi.
Eldhús er með harðparketi á gólfi, falleg innrétting með miklu skápaplássi, innbyggður ísskápur og uppþvottavél og ljósar flísar á bekkjarplötu og á vegg yfir skápum.
Stofa er björt með ljósu harðparketi á gólfi. Milli stofu og eldhúss er hurð út á stóra steypta verönd með heitum potti.
Stigi steyptur á milli hæða.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með ljósu harðparketi parketi á gólfi og tvö með fataskápum. Úr hjónaherbergi er gengið út á svalir til vesturs.
Baðherbergi er mjög fallegt, með flísum á gólfi og dökkum plötum á veggjum. dökk rúmgóð innrétting með hvítri bekkjarplötu og frístandandi vask, upphengt salerni og handklæðaofn.
Geymsla er með harðparketi á gólfi.
Bílskúr er skráður 24m
2 og er innangengt í hann í gegnum forstofu og þar er rafdrifinn hurðaropnari. Innrétting í enda bílskúrs er með stæði fyrir þvottavél og þurrkara ásamt vask og fallegar ljósar flísar á gólfi.
Annað-Vel um gengin og mjög snyrtileg eign
-Stór steypt verönd með heitum potti sem snýr til vesturs.
-Næturlýsing í stiga milli hæða
-Falleg innfelld lýsing meðal annars yfir borðstofuborði og á baðherbergi
-Innfeld blöndunartæki.
-Hiti er í öllum gólfum
-Mjög fallegt útsýni
-Góð staðsetning, miðsvæðis á Akureyri stutt í verslun og aðra þjónustu