SÆKJA SÖLUYFIRLIT STRAXLANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / ) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: Falleg og rúmgóð 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi í Laugarneshverfinu. Á árunum 2019-2020 var húsið endurnýj... Sýna meira
SÆKJA SÖLUYFIRLIT STRAXLANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / ) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: Falleg og rúmgóð 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi í Laugarneshverfinu. Á árunum 2019-2020 var húsið endurnýjað að utan en þá var skipt um járn og pappa á þaki og rennur endurnýjaðar, húsið málað og múrviðgert, gluggar og gler endurnýjaðir að mestu í íbúðinni árið 2022. Árið 2015 var dregið í rafmagn og árið 2003 var drenað garðmegin. Í eigninni eru þrjú mjög rúmgóð svefnherbergi ásamt eldhúsi, stofu baðherbergi og sér þvottahúsi sem er innaf eldhúsinu. Nánari lýsing eignar: Komið er inn á forstofu / gang með fatahengi. Á vinstri hönd við inngang er eldhús með fallegri innréttingu með efri og neðri skápum, flísar á milli efri og neðri skápa, borðkrókur. Árið 2018 var eldhúsið endurnýjað en þá var skipt um innréttingu, tæki og komið fyrir gólfhita í gólfinu. Innaf eldhúsinu er þvottahús með innréttingu og glugga, hiti í gólfi. Á hægri hönd við inngang er svefnherbergi með fataskáp. Tvö svefnherbergi eru til viðbótar og er annað herbergið með stórum fataskáp og í hinu útgangur út á svalir. Björt og rúmgóð parketlögð stofa. Baðherbergi með baðkari, flísar á veggjum, handklæðaofni og glugga. Árið 2017 var innréttingin endurnýjuð á baðherberginu. Gólfefni íbúðar: parket að mestu á gólfum fyrir utan baðherbergið en þar er gólfið málað. Í sameign er rúmgóð 8,2 fm geymsla sem fylgir íbúðinni. Tvö húsfélög eru í húsinu, eitt fyrir stigaganginn og annað fyrir allt húsið.VIRKILEGA GÓÐ STAÐSETNING, MIÐSVÆÐIS Í BORGINNI Á GRÓNUM STAÐ ÞAR SEM STUTT ER Í ALLA HELSTU ÞJÓNUSTU T.A.M. VERSLUN OG ÞJÓNUSTU, LEIKSKÓLA, SKÓLA, LAUGARDALSLAUG OG FALLEGAR GÖNGULEIÐIS Í LAUGARDALNUM OG Á LAUGARNESTANGANUM. Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða Meðmæli fyrri viðskiptavinaFylgdu mér á FacebookFylgdu mér á InstagramPantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA