Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905, kynna í einkasölu, Kleppsveg 132, 104 Reykjavík;
Bjarta, fallega og rúmgóða 3ja herbergja útsýnisíbúð á 8. hæð í vel viðhaldinni lyftublokk í 104 Reykjavík.
Húsið Kleppsvegur 132-134 hefur fengið gott viðhald undanfarin ár.- Birtar stærðir skv. HMS: Íbúð er 82,4 fm + geymsla 4,7 fm
- Samtals því 87,2 m2 að stærð
- 8. hæð -óhindrað stórbrotið útsýni - suður svalir
- 3ja herbergja - 2 óvenju rúmgóð svefnherbergi
- 2021: Baðherbergi íbúðar gert upp og endurnýjaðar allar innihurðar íbúðar.
- 2017: Húsið málað að utan.
- 2017: Nýjir gluggar í öllum íbúðum.
- 2017: Svalir flotaðar og steyptar.
- 2017: Sprunguviðgerðir á ytra byrði húss.
- 2018: Ný lyfta.
- 2022: Nýjir dyrasímar.
- 2024: Viðgerð á hitakerfi hússins. Allur miðlægur búnaður hitakerfis uppfærður (m.a. skipt um hitagrind og dælu) og strengloka sett á hverri hæð.
- 2025: Rafhleðslustöðvar á bílastæði.
- 2025: Stigagangur málaður og teppalagður.Eignin skiptist í: Forstofu/hol, eldhús, stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í sameign.
Nánari lýsing: Gengið er inn um sameiginlegan inngang á framhlið hússins og inn á snyrtilegan stigagang með lyftu.
Forstofa/hol: Af stigagangi, flísalagt með fataskáp. Af því er gegnið inn í aðrar vistarverur eignarinnar.
Eldhús: Af forstofu, opið við stofu/borðstofu. Flísalagt með ljósri innréttingu á tveimur veggjum og borðkrók með útsýni. Gott skápapláss með efri og neðri skápum og hvítum flísum á milli skápa. Gott vinnurými.
Stofa/borðstofa: Í opnu rými. Opið við forstofu og elshús. Parketlagt og bjart með síðum gluggum, stórbrotið útsýni. Þaðan er útgengt á svalir.
Svefnherbergi (hjónaherbergi): Parketlagt með skáp á heilum vegg með rennihurðum.
Svefnherbergi: Parketlagt með stórum skáp með rennihurðum.
Baðherbergi: Fallegt, gert upp 2021. Flísalagt á gólfi og veggjum með "walk in" sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni, vaskinnréttingu og skápum.
Geymsla: Sér geymsla íbúðarinnar er 4,7 fm, staðsett í sameign í kjallara.
Þvottahús: Er í sameign í kjallara. Þar eru vélar í eigu húsfélagsins. 2 þvottavélar og 2 þurrkarar.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymslu er í sameign í kjallara. Lóð: Lóðin er stór 17.849 og það er sameiginlegt lóðafélag fyrir Kleppsveg 128-144. Stóra húsfélagið er fyrir Kleppsveg 132-134 og svo fyrir hvern stigagang.
Samantekt: Í heildina er um að ræða vel skipulagða, bjarta og fallega, 3ja herbergja íbúð í húsi sem hefur fengið gott viðhald, á besta stað á Kleppsvegi, 104 Rvk.
Góð staðsetning; Öll skólastig eru í næsta nágrenni. Þetta er barnvænt umhverfi með leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla í göngufæri, auk þess sem sundlaugin og Holtagarðar með Bónus, líkamsræktarstöð ofl. er handan götunnar. Góðar hjóla og göngusamgöngur allt um kring. Lystigarðurinn rétt hjá
Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-89805