Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905, kynna í einkasölu, Kleppsveg 132, 104 Reykjavík;
Bjarta, snyrtilega og rúmgóða 2ja herbergja útsýnisíbúð á 6. hæð í vel viðhaldinni lyftublokk í 104 Reykjavík.
Húsið Kleppsvegur 132-134 hefur fengið gott viðhald undanfarin ár.- Birtar stærðir skv. HMS: Íbúð er 53,6 fm + geymsla 3,6 fm- Samtals því 57,2 m2 að stærð- 6. hæð -óhindrað stórbrotið útsýni - suður svalir- 2ja herbergja - 1 rúmgott svefnherbergi
- 2018: Skipt um hurðar íbúðar ásamt eldvarnarhurð.
- 2019: Nýtt parket - 2024: Eldhús íbúðar endurnýjað og allt rafmagn endurnýjað og rafmagnstafla endurnýjuð.- 2017: Húsið málað að utan.
- 2017: Nýjir gluggar í öllum íbúðum.
- 2017: Svalir flotaðar og steyptar.
- 2017: Sprunguviðgerðir á ytra byrði húss.
- 2018: Ný lyfta.
- 2022: Nýjir dyrasímar.
- 2024: Viðgerð á hitakerfi hússins. Allur miðlægur búnaður hitakerfis uppfærður (m.a. skipt um hitagrind og dælu) og strengloka sett á hverri hæð.
- 2025: Rafhleðslustöðvar á bílastæði.
- 2025: Stigagangur málaður og teppalagður.Eignin skiptist í: Forstofu/hol, eldhús, stofu/borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í sameign.Nánari lýsing: Gengið er inn um sameiginlegan inngang á framhlið hússins og inn á snyrtilegan stigagang með lyftu.
Forstofa/hol: Af stigagangi, parketlagt með fataskáp. Af því er gegnið inn í aðrar vistarverur eignarinnar.
Eldhús: Af forstofu, opið við stofu/borðstofu. Flísalagt með hvítri innréttingu á tveimur veggjum og borðkrók með útsýni. Gott skápapláss með efri og neðri skápum. Gott vinnurými.
Stofa/borðstofa: Í opnu rými. Opið við forstofu og eldhús. Parketlagt og bjart með síðum gluggum, stórbrotið útsýni. Þaðan er útgengt á 5,3 fm útsýnissvalir.
Svefnherbergi: Parketlagt með stórum skáp með rennihurðum.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, baðkar, hvítur vaskskápur og speglaskápur.
Geymsla: Sér geymsla íbúðarinnar er 3,6 fm, staðsett í sameign í kjallara.
Þvottahús: Er í sameign í kjallara. Þar eru vélar í eigu húsfélagsins. 2 þvottavélar og 2 þurrkarar.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymslu er í sameign í kjallara.
Lóð: Lóðin er stór 17.849 og það er sameiginlegt lóðafélag fyrir Kleppsveg 128-144. Stóra húsfélagið er fyrir Kleppsveg 132-134 og svo fyrir hvern stigagang.
Samantekt: Í heildina er um að ræða vel skipulagða, bjarta og snyrtilega, 2ja herbergja útsýnisíbúð í húsi sem hefur fengið gott viðhald, á besta stað á Kleppsvegi, 104 Rvk.
Góð staðsetning; Öll skólastig eru í næsta nágrenni. Þetta er barnvænt umhverfi með leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla í göngufæri, auk þess sem sundlaugin og Holtagarðar með Bónus, líkamsræktarstöð ofl. er handan götunnar. Góðar hjóla og göngusamgöngur allt um kring. Lystigarðurinn rétt hjá
Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-89805