Hannes Steindórsson kynnir: Mjög fallegt og vel við haldið raðhús á tveimur hæðum með bílskúr og mikilli lofthæð.
Fjögur til fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi, mikil lofthæð. Fallegur arinn í stofu.
Timburverönd, upphitað bílaplan og snyrtilegur garður.Forstofa: Flísalögð forstofa með skápum og skúffuskápum
Hol: Parketlagt hol í mðju húss.
Stofa: Parketlögð og björt stofa með mikilli lofthæð og fallegum gluggum og arni, útgengt út í garð, yfirbyggð verönd sem hægt er að loka af.
Borðstofa: Parketlögð borðstofa við hlið stofu.
Eldhús: Flísalagt rúmgott eldhús með góðum borðkrók og fallegum gluggum.
Þvottahús: Flísalagt þvottahús innaf eldhúsi með gluggum og útgengi út á verönd og garð.
Svefnherbergi 1: Parketlagt rúmgott svefnherbergi.
Baðherbergi: Flísalagt stórt baðherbergi með baðkari og sturtu.
Bílskúr: 30 fm snyrtilegur bílskúr með tveimur inngönguhurðum, bæði að framan og að aftan, útgengt út í garð og verönd að aftan.
Efri hæð: Parketlagður og bjartur stigi milli hæða. Mikil lofthæð.Sjónvarpsstofa: Parketlögð sjónvarpsstofa
(hægt að bæta við svefnherbergi).Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með sturtu og fallegri innréttingu.
Svefnherberbergi 2: Rúmgott parketlagt svefnherbergi með miklu skápaplássi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott parketlagt svefnherbergi með miklu skápaplássi.
Svefnherbergi 4: Parketlagt svefnherbergi með útgengi út á svalir.
Geymslurými: Löng og mikil geymsla undir súð.
Bílaplan: Hellulagt bílaplan með hitalögn og hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.
Allar upplýsingar veitir: Hannes Steindórsson s.699-5008 hannes@fastlind.is