**Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555**Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg 66,1 m2, 2ja herbergja íbúð með sérinngangi af opnum svalagangi á efstu hæð í þriggja hæða fjölbýlishúsi við Klapparhlíð 32 í Mosfellsbæ. Fallegt útsý... Sýna meira
**Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555**Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg 66,1 m2, 2ja herbergja íbúð með sérinngangi af opnum svalagangi á efstu hæð í þriggja hæða fjölbýlishúsi við Klapparhlíð 32 í Mosfellsbæ. Fallegt útsýni. Eignin skiptist í svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofu. Sérgeymsla á hæðinni. Frábær staðsetning. Stutt í skóla, leikskóla, sund og líkamsræktarstöð. Eignin er skráð 66,1 m2, þar af íbúð 59,4 m2 og geymsla 6,7 m2.Nýtt harðparket var sett á gólf árið 2020.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sentNánari lýsing:Forstofa er með fataskáp og harðparketi á gólfi.Stofa og eldhús: er í sameiginlegu rými með harðparketi á gólfi. Í eldhúsi er L-laga innrétting með ísskáp, uppþvottavél, ofni, helluborði og viftu. Úr rýminu er gengið út á svalir í suðvesturátt með fallegu útsýni.Svefnherbergið er með fataskápum og harðparketi á gólfi.Baðherbergi er flísalagt með innréttingu, handklæðaofni vegghengdu salerni og baðkari.Þvottahús er inn af baðherbergi og er með flísum á gólfi.Geymsla: er í sameign á hæðinni skráð 6,7 m2.Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.Verð kr. 49.900.000,-Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586 8080.Einnig er hægt að ná í Svanþór í síma 698-8555, ,Sigurð í síma 899-1987, og Theodór í síma 690-8040, Fasteignasala Mosfellsbæjar, Þverholti 2, Mosfellbæ. Opið frá kl. 9-17 alla virka dagaHeimasíða Fasteignasölu MosfelsbæjarFasteignasala Mosfellsbæjar á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.