Gimli fasteignasala kynnir í einkasölu: Frábæra 5 herbergja íbúð á jarðhæð með ca 25 fm palli og skjólgirðingu. Um er að ræða töluvert endurnýjaða íbúð, samkvæmt fasteignamati er eigninn skráð 112,4 fm. Samkvæmt teikningu skiptist eignin í forstofu, eldhús, stofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi... Sýna meira
Gimli fasteignasala kynnir í einkasölu: Frábæra 5 herbergja íbúð á jarðhæð með ca 25 fm palli og skjólgirðingu. Um er að ræða töluvert endurnýjaða íbúð, samkvæmt fasteignamati er eigninn skráð 112,4 fm. Samkvæmt teikningu skiptist eignin í forstofu, eldhús, stofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Nýlega endurnýjað í íbúð:*Nýbúið að endurnýja baðherbergi.*Hluti af eldhúsi endurnýjað.*Búið að endurnýja fataskápa í forstofu, forstofuherbergi og hjónaherbergi. *Búið að endurnýja gólfefni í barnaherbergjum.*Íbúðin er nýlega máluð í stofu/eldhúsi og herbergjum.Nánari upplýsingar veitir Elín Urður Hrafnberg, Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til NÁNARI LÝSING:Forstofa: með fataskáp, hillum og flísum á gólfi.Herberg 1#: inn af forstofu með harðparketi á gólfi og speglaskápum. Hol: með flísum. Hjónaherbergi 2#: með harðparketi á gólfi og góðum skápum. Herbergi 3#: með harðparketi á gólfi og skáp.Herbergi 4#: með harðparketi á gólfi.Eldhús: endurnýjað að hluta, hvítu skáparnir eru endurnýjaðir, ásamt borðplötu, flísum á milli innréttinga, vaski, blöndunartæki, uppþvottavél og helluborði.Stofa: er rúmgóð og björt með flísum á gólfi og útgegni út á góðan pall með hlið út í sameiginlegan garð af pallinum. Baðherbergi: er nýuppgert með ljósum flísum á gólfi og fallegum flísum á veggjum, með góðri viðarlitaðri innréttingu með koparlituðum vaski, svartri borðplötu og blöndunartækum, stórum spegli, upphengdu wc, handklæðaofni og sturtubotni með glerlokun, reykliðaðri speglarennihurð inn í þvottahús. Þvottahús: inn af baðherbergi með tengi fyrir þvottavel og þurrkara, hillum, þvottasnúrum og flísum á gólfi. Geymsla: með góðum hillum.Niðurlag:Mjög vel staðsett eign í göngufæri við skóla og leikskóla. Stutt í þjónustu, verslanir og sundlaug.Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.