Nes fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:
Kjartansgata 29, 310 Borgarnes.
Um er að ræða mjög fallegt 141,30 fm einbýlishús byggt úr timbri árið 1976. Eignin er vel staðsett miðsvæðis í Borgarnesi, með óhindrað útsýni yfir Borgarvog til vesturs. Húsið er hæð og kjallari undir hluta, klætt að utan og vel við haldið.Nánari lýsing:Íbúð á hæð skiptist í forstofu, eldhús, 3 svefnherbergi og baðherbergi á svefnherbergisgangi, stofu og sólstofu og vinnuherbergi ásamt þvottahúsi.
Kjallari er með sérinngangi, skiptist í 1 herbergi snyrtingu og óinnréttaða geymslu. Innangengt í kjallara um timburstiga á gangi.
Anddyri er með rúmgóðum fataskáp, flísar á gólfi.
Stofa og borðsofa mynda opið og bjart alrými ásamt sambyggðri
sólstofu. Parket á stofum en flísar á sólstofu. Fallegur arinn er í horni sólstofunnar og gólfhiti.
Svefnherbergi eru parketlögð og eru skápar í 2 þeirra.
Eldhús er með ljósri innréttingu og borðkrók.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuaðstöðu, innrétting með skápum og vegghengt salerni og handklæðaofn.
Herbergi í kjallara plastparket gólfi.
Snyrting í kjallara dúkur á gólfi.
Sólpallur er við húsið með skjólveggjum.
Garðurinn er fallega hirtur með runnum og margvísleguum gróðri.
Góð staðsetning. Stutt í íþróttamannvirki og alla þjónustu sem eru í göngufæri.Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.