Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Kjarnagata 65 íbúð 201
Glæsileg 3-4ra herbergja íbúð með sér inngangi á efri hæð í suður enda í nýlegu fjölbýlishúsi í Hagahverfi - stærð 87,8 m²
Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu sem getur nýst sem svefnherbergi. Í sameigninni er sér geymsla, skráð 3,6 m² að stærð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.Forstofa er með harðparketi á gólfi fatahengi og tvöföldum fataskáp.
Eldhús, vönduð L-laga svört plastlögð innréttingin (Nero oak) með grárri borðplötu og svörtum vask. Mjúklokun er á skúffum og skápum.Uppþvottavél og ísskápur með frysti eru innbyggð í innréttingu og fylgja með við sölu eignar.
Stofa og eldhús eru í opnu rými með ljósu harðparketi á gólfi og gluggum til tveggja átta. Úr stofu er rennihurð út á steyptar vestur svalir, skráðar 8,2 m² að stærð. Svalir eru steyptar með galvinseruðu járn handriði og klætt með plast plötum.
Baðherbergi, vönduð svört plastlögð innrétting með grárri borðplötu og speglaskápur fyrir ofan. Stæði er í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Upphengt wc og walk-in sturta. Gráar flísar eru á gólfi og hluta veggja.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfi og í hjónaherbergi er stór fataskápur. Stærð herbergja er skv. teikningum 9,1 og 11,8 m².
Geymsla innan íbúðar er skv. teikningum 8,3 m² að stærð og getur nýst sem þriðja svefnherbergið, þar er harðparket á gólfi og fjórfaldur fataskápur.
Í sameigninni á jarðhæðinni er
sér geymsla, skráð 3,6 m² að stærð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Epoxy efni er á gólfi.
Annað- Innréttingar og skápar er plastlagðar, Nero oak og eru frá www.gks.is
- Gólfefni, ljóst harðparket er á öllum rýmum að baðherbergi undanskildu þar eru gráar flísar.
- Innihurðar eru yfirfelldar hvítar.
- Hljóðdempandi plötur í öllum loftum nema á baðherbergi.
- Innfelld led-lýsing í loftum.
- Stéttar við aðalinngang eru steyptar og með hitalögnum í.
- Húsið er steypt og einangrað að utan og klætt með gráu báruðu stáli og timbri við innganga.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.