**Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun**RE/MAX kynnir í einkasölu: Falleg og björt fjögurra herbergja 109,5 fm. íbúð á jarðhæð með skjólgóðri verönd í góðu fjölbýlishúsi við Kirkjuvelli 5, Hafnarfirði. Íbúðin er 101,6 fm. og skiptist í forstofu og opið rými, eldhús, stofu og borðstofu, þrjú sv... Sýna meira
**Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun**RE/MAX kynnir í einkasölu: Falleg og björt fjögurra herbergja 109,5 fm. íbúð á jarðhæð með skjólgóðri verönd í góðu fjölbýlishúsi við Kirkjuvelli 5, Hafnarfirði. Íbúðin er 101,6 fm. og skiptist í forstofu og opið rými, eldhús, stofu og borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús er innan íbúðar. Sérgeymsla 7,9 fm. er staðsett í sameign. Eignin hefur fengið gott viðhald, m.a. er þakframkvæmdum nýlega lokið ásamt því sem húsið var sílanborið. Stutt er í alla helstu verslun og þjónustu auk þess sem grunnskóli, leikskóli og fjölbreytt íþróttastarf er í göngufæri. KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉRFÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉRNánari lýsing:Forstofa er parketlögð með góðum fataskápum sem ná upp í loft.Eldhús er með fallegri eikar innréttingu með góðu skápaplássi og grárri borðplötu, vandaðar steinflísar á milli skápa og borðkrókur er við glugga. Nýlega endurnýjaðar flísar á gólfi.Stofa og borðstofa er mjög rúmgóð og björt með útgengt út á stóra skjólgóða viðarverönd.Svefnherbergin eru þrjú, öll með góðum fataskápum sem ná upp í loft, parket á gólfi.Baðherbergi er með sturtuklefa, baðkari, upphengdu salerni, handklæðaofni og eikar vaskinnréttingu. Flísalagt gólf og veggir.Þvottahús er innan íbúðar, með vaski og gólf er flísalagt.Sérgeymsla um 7,9 fm. að stærð er staðsett í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu.Bílastæði eru staðsett fyrir framan hús.Eignin hefur fengið gott viðhald. Skipt var um þak sumarið 2023 og húsið sílanborið. Gluggar eru nýlega málaðir að utan (suðaustan og suðvestan megin) og innan. 2020-2021 voru settar vandaðar flísar á eldhúsgólf og á vegg milli skápa. Einnig var skipt um blöndunartæki í eldhúsi. Þar að auki er varmadæla í húsinu sem tryggir lengri líftíma á neysluvatnslögnum fyrir heita vatnið. Þar að auki er hægt að drekka heita vatnið (Ekki hitaveituvatn). Góðir nágrannar að sögn eiganda og nánast allar íbúðir í húsinu eru eignaíbúðir.ATH fyrirhugað fasteignamat næsta árs er kr.67.750.000,-Húsið er steinað að utan og því viðhaldslítið. Aðkoman að húsinu og sameign mjög snyrtileg. Næg bílastæði eru fyrir framan húsið, sameiginlegur garður og lítill leikvöllur er við hlið húsins. Virkt og gott húsfélag.Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.