Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Kirkjuvegur 12 - Ólafsfirði
Virkilega fallegt og vel við haldið einbýlishús á einni hæð með kjallara undir helming hússins. Eignin er samtals 170,1 fm. þar af er hæðin 125,7 fm. og kjallari sem hefur mikla möguleika er um 44,44 fm.
Húsið var upphaflega barnaskóli en hýsti síðar bæjarskrifstofur og safnaðarheimili kirkjunnar sem stendur beint á móti húsinu eins og sjá má á myndum. Fyrir um 30 árum var allt húsið klætt að innan, vatn og rafmagn endurnýjað, nýtt þakjárn og skipt um glugga á húsinu. Síðan þá hefur verið drenað í kringum húsið 2017, skipt um gler á hæðinni 2019 og útidyrahurð 2020 samkvæmt fyrrum eiganda. Auk þess hefur innra rými verið breytt með þeim tilgangi að búa til íbúðarhúsnæði, t.a.m. eldhús, baðherbergi með þvottaaðstöðu og fleira. Nánari lýsing:Forstofa er með flísar á gólfi, opnu fatahengi og skáp.
Stofa og eldhús er í opnu rými. Parket er á gangi og á stofu sem er afar björt með aukinni lofthæð. Á eldhúsi eru flísar á gólfi, dökk innrétting með gaseldavél, stæði fyrir ísskáp og innbyggða uppþvottavél sem fylgir. Virkilega gott vinnupláss skapast með eyjunni sem er einnig góð hirsla.
Í enda stofu er
herbergi aðgreint með harmonikuhurð en þar væri hægt að gera varanlegan vegg. Í dag er það nýtt einnig sem skrifstofa.
Svefnherbergi við hlið eldhúss er með parket á gólfi og góðir fataskápar.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og hluta veggja, innréttingu í kringum vask, upphengt salerni, baðkar með sturtutækjum, handklæðaofn, gluggi með opnanlegu fagi, stæði fyrir þvottavél og hægt að koma fyrir þurrkara ásamt innfrarauðri saunu sem getur fylgt með við kaupin.
Í kjallara sem er aðgengilegur úr stofu um brattan stiga og er eins og áður sagði undir hálfu húsinu er gólf málað. Þar er einnig bakdyrainngangur en hurðin þar orðin léleg. Búið er að loka fyrir einhverja glugga. Þar eru inntök fyrir vatn. Möguleiki er að gera töluvert meira úr þessu rými. Undir hinum hluta hússins er skriðkjallari.
Annað: -Húsið var múrviðgert og málað fyrir um 2 árum
-Nýr gluggi í forstofu
-Bætt við einangrun á þakið og nýjar þakrennur
-Stétt og tröppur að húsi einnig endurgerðar fyrir um 2 árum
-Hiti í tröppum með affalli af húsinu
-Steypt girðing í kringum húsið með fallegu timburverki milli steyptra staura
-Baðherbergi og eldhús endurnýjað
-Gólfhiti á baði og eldhúsi
-Möguleiki að fjölga herbergjum á kostnað stofu sem er afar rúmgóð
-Um 3 metra lofhæð í stofu
-Ljósleiðari
-Nýleg hitagrind og inntak fyrir kaldavatn ásamt öllu kaldavatnskerfinu í eigninni, komið í álpex
-Rafmagnstafla hefur verið endurnýjuð
-Einfasa bílhleðslustöð
-Rafmagnskamína í stofu getur fylgt
-Peningaskápur í kjallara fylgir. Ekki hefur tekist að opna hann af núverandi eigendum og því mögulegan fjársjóð að finna þar
-Góður hljómburður í húsinu
-Stutt í messu
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:
464 9955